Landsbankinn verðlaunaði í dag ellefu afburðanemendur á ýmsum skólastigum þegar námsstyrkir bankans voru afhentir fyrir árið 2005. Ríflega 400 umsóknir bárust að þessu sinni. Námsstyrkir Landsbankans voru nú veittir í sextánda sinn. Einn styrkþega var Hornfirðingurinn Sigrún Ólafsdóttir, doktorsnemi í félagsfræði við Indiana-háskóla. Eiríkur Guðmundsson, móðurbróðir Sigrúnar tók við styrknum við athöfn í Reykjavík í gær. Hlaut hún styrk að upphæð kr. 300.000 kr. Landsbankinn veitti einnig styrki til framhaldsskóla- og iðnnáms á Íslandi, að upphæð kr. 100.000 hver, þann stuyrk hlutu Inga Steinunn Helgadóttir, Menntaskólanum á Akureyri, Hrafnhildur Birgisdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík og Jón Helgi Sveinbjörnsson, Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Lesa meira