Maí
Grásleppuveiðar
Grásleppuveiðar
Heimir Karlsson gerir að aflanum
Mynd 2 af 7
1 2 3 4 5 6 7

31.05.2005 Maí

Grásleppuvertíð og þarastönglar

Grásleppuvertíðin var með stysta móti þetta árið eða frá 29. mars til 28. maí enda samstaða um að draga úr veiðum vegna mikilla birgða og lágs verðs á grásleppuhrognum. Tveir Hornafjarðarbátar stunduðu veiðarnar frá Djúpavogi, Siggi Bessa Sf og Benni Sf sem báðir lögðu netin 29.mars s.l. Berfirðingar buðu okkur hjartalega velkomna segir Friðþór Harðarson á Benna og þökkuðu okkur fyrir að hreinsa þarann úr firðinum og það líka óumbeðið, það þyrfti að borga þeim mikið til að þeir kæmu til að hreinsa þarann úr Hornafirði, það vantar ekki spaugið fyrir austan. Veiðin var heldur minni per dag miðað við árið á undan en veðrið hafði líka áhrif á veiðarnar og voru netin dreginn tvisvar upp, minnugir þarastönglana árinu á undan. En setji upp sjó þ.e. sjólag vesnar og netin væru á grunnu vatni fyllist allt af þarastönglum eins og sjá má á myndunum sem fylgja þessari frétt. Friðþór segir þá líka hafa lagt inn á Breiðdalsvík, Kambavík og einnig lagði Unnsteinn á Sigga Bessa í Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði. Lagt var fyrir hákarl út af Krossi á Berufjarðarströnd en við urðum ekki varir.

Friðþór segir að ekki hafi það verið til að bæta útkomuna að 25 prósenta verðlækkun varð á hrognum þetta árið og skilaði vertíðin því litlu, en eins og ég sagði svo oft við Heimi Karlsson félaga minn, er hann slóst við tveggja metra þarastöngla í þúsundatali, að sumt væri ekki metið til fjár. Í vertíðarlok voru lagðar nokkrar netatrossur á heimaslóðum og þar fengust 3 sleppur, ýsa, skötuselur, þorskur, hnísa, koli, ígulker, ufsi, steinbítur og svartfugl en það vantaði allan ÞARA.

 

[Myndir: Heimir & Friðþór]

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica