Maí
Helga_RE49
Helga_RE49
Helga RE49 (©Alfons Finnsson 2004)

31.05.2005 Maí

Nýtt skip í skipaflota Skinneyjar Þinganess

Nýtt skip bættist í skipaflota Skinneyjar Þinganess í gær þegar gengið var frá kaupsamningi á fiskveiðiskipinu Helgu RE 49. Með skipinu fylgja aflaheimildir. Helga RE er smíðuð í Kína 2001, 327 brúttótonn, lengd 28,62 og breidd 9,17m. Skipið verður afhent nýju eigendunum 15.ágúst. Gunnar Ásgeirsson hjá Skinney Þinganesi segir að skipið verði gert út frá sinni heimahöfn, Hornafirði. Skinney Þinganes hefur rekið fiskvinnslu á Reyðarfirði en nú hefur starfsfólki þar verið sagt upp og vinnslu verður hætt. Gunnar segir að öll fiskvinnsla verði hjá fyrirtækinu hér á Hornafirði.

Jóna Eðvaldsdóttir er nýfarin á kolmunnaveiðar en veiði hefur gerið bærileg hjá kolmunnaveiðiskipum undanfarið. Ásgrímur Halldórsson er á kolmunnaveiðum en hann er núna á veiðum fyrir Síldarvinnsluna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica