Ef ekkert rignir það sem eftir er maí gæti stefnt í met úrkomuleysi
Hornfirðingar eru farnir að bíða eftir að fari að rigna, ekki smá skúri heldur alvöru rigningu, nokkuð sem ekki skeður oft á þessum landshluta. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að engin úrkoma sé í spám fram á þriðjudag að því undanteknu að spáð sé lítilsháttar úrkomu í skúraformi á föstudag, þó ekkert sem gagn er að. Spáð er að veður fari heldur hlýnandi. ,,Þetta er alveg ótrúlegt? sagði Einar þegar hann fór að skoða úrkomutölur frá Akurnesi síðustu fimm vikurnar, síðasta úrkoma sem mældist í Akurnesi sem eitthvað kvað að var aðfaranótt 15.maí 1.5 mm sem ekki þykir mikið í Hornafirði. Smávegis rigndi 1. og 2. maí og er samanlögð úrkoma í maí 4 mm í nokkrum örskömmtum og ef ekkert rignir það sem eftir er maí gæti stefnt í met úrkomuleysi. Einar segir að síðast hafi rignt eitthvað sem heitið getur 18.apríl en þá mældist úrkoman 40 mm síðan ekkert rignt að gagni.
Meðal úrkoma í maí á Hólum er 95,7 ( þessi maí ekki með) og samkvæmt mælingum er tímabilið apríl til júlí úrkomuminnst, svo eykst úrkoma í ágúst og mælist mest á haustin.
Minnsta úrkoma sem mælst hefur á Hólum í maí frá 1931 er 6 mm 1958 og 9,1 mm 1979. Þessi tvö ár eru þau einu frá 1931 sem samanlögð úrkoma maímánaðar mælist innan við tíu mm sem vissulega er óvenjulegt og sérstakt segir Einar. Hitastigið hefur verið í lægri kantinum og er meðalhiti í Akurnesi í maí 5° og 6° á Hólum en sú tala getur breyst þar sem hlýnandi veðri er spáð síðustu daga mánaðarins. Einar segir þetta vera ívið kaldara en í meðal ári og í samanburði við síðustu 4 ár er maí 1° til 3° kaldari en fyrstu þrjár vikur maí mánaða sl. 4 ár.





Skrifa athugasemd