Maí
Gólfefni og þrif
Gólfefni og þrif
Þorgeir Krisjánsson
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

25.05.2005 Maí

Gólfefni og þrif flytur í nýtt húsnæði

Verslunin Gólfefni og þrif hefur flutt sig um set, af Álaugarvegi 1 í rúmgóð húsakynni á Vesturbraut 2 þar sem Ljósey var áður. Það var löngu orðið alltof þröngt um okkur þarna útfrá á 74 fermetra plássi þar sem vöruvalið er alltaf að aukast segir Þorgeir Kristjánsson sem rekur verslunina ásamt konu sinni Áslaugu Einarsdóttur. Nýi staðurinn er 152 ferm. svo nú eru vörurnar farnar að sjást og það er notalegt að geta boðið viðskiptavinunum upp á góða aðstöðu segir Þorgeir. Nú þegar plássið leyfir verður vöruflokkum trúlega fjölgað, en þær vörur sem Þorgeir og Ása eru með eru; gólfteppi, gólfdúkar og yfirleitt öll þau gólfefni sem á markaði eru. Gólfefnin panta þau eftir óskum og þörfum hvers og eins og kemur varan á staðinn næsta dag og er verð þess það sama og í Reykjavík. Svo eru það hreinlætis-rekstrarvörurnar fyrir ferðaþjónustur, fyrirtæki og einstaklinga, umhverfisvænar Tandur-vörur ásamt ýmsum erlendum umhverfisvænum vörum.

Þorgeir segir að verð á rekstrarvörunum hjá þeim sé það sama og er í Reykjavík og að þau séu með þjónustu á hreinlætis og rekstrarvörum á öllu svæðinu frá Höfn vestur undir Eyjafjöll. Auk verslunarrekstursins eru þau Ása og Þorgeir með bónþjónustu og sjá um að halda gólfum fyrirtækja, skóla og hvar sem er stífbónuðum og fínum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica