Maí
Flosalaug, Svínafelli Öræfum
Flosalaug, Svínafelli Öræfum
Flosalaug, Svínafelli Öræfum

24.05.2005 Maí

Besti maímánuðurinn í ferðaþjónustunni frá byrjuðum

Þetta hefur verið einn besti maímánuðurinn í ferðaþjónustunni hjá okkur frá því við byrjuðum segir Ólafur Sigurðsson í Svínafelli. Mikill straumur fólks hefur verið á Öræfajökul og Hvannadalshnúk síðan fyrir Hvítasunnu og hefur yfirleitt viðrað vel til þeirra ferða og vel bjart á jöklinum. Ekki hefur verið jafn gott skyggni yfir Skeiðarársandi því þar hefur legið ryk og sandmökkur yfir undanfarna daga og sér ekki í Lómagnúp segir Ólafur og hann segir fínt ryk frá sandinum berast yfir sveitina þegar allt sé orðið svona þurrt. Búið er að fá nýjan heitapott við sundlaugina í Svínafelli í stað þess sem fauk í vetur og hafnaði stórskemmdur úti í sundlauginni.

Ólafur segir að vel líti út með ferðaþjónustuna í sumar og að venju er allt fullt í júlí og ágúst og mikið pantað fyrir og eftir þá mánuði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica