Búið er að opna ferðaþjónustuna við Jökulsárlón
Búið er að opna ferðaþjónustuna við Jökulsárlón. Starfsemin verður með hefðbundnu sniði svo sem verið hefur og stefnt er á að bæta við einu hjólaskipi í júlí og ágúst í siglingar um lónið. Ferðafólki sem fer í siglingu um lónið hefur fjölgað ár frá ári og í fyrra komu þar rúmlega 40 þúsund manns. Starfsmenn verða 28 í sumar og sagði Einar Björn Einarsson skipstjóri og staðarhaldari að enn vantaði fólk til starfa við lónið. Starfsmenn þurfa að hafa góða tungumálakunnáttu og þjónustulipurð. Hjólaskipin þrjú sem notuð hafa verið í siglingarnar taka 25 farþega hvert og eru ferðir um lónið eftir aðsókn hverju sinni og þegar mest hefur verið að gera hefur verið siglt með um 800 manns á dag. Mikill ís hefur verið á lóninu í vor og ekki fært bátum en er orðið vel siglingarfært núna. Í veitingasölunni verður sem fyrr boðið upp á hina heimsfrægu sjávarréttasúpu sem verið hefur sérlega vinsæl þar ásamt úrvali af smurðu brauði.
Flugeldasýningin á Jökulsárlóni sem verið hefur um verslunarmannahelgina verður sennilega eitthvað seinna í sumar, það fer betur á að hafa hana þegar farið er að dimma meira, þá verður sýningin enn stórfenglegri en áður. Einar Björn segir um 95 % þeirra ferðamanna sem koma í siglingu um lónið séu útlendingar og fimm prósentin Íslendingar. Tveir skúmar hafa verið fastagestir við þjónustumiðstöðina í mörg ár, annar þeirra í ein tíu ár . Annar skúmurinn er mættur núna og að venju kemur hann á matar og kaffitímum og þiggur hressingu af starfsfólkinu. Einar Björn segir að uppáhaldsmatur skúmsins séu SS pylsur, það verði að vera SS pylsur, og lætur hann sig ekki muna um að renna niður 2-3 pylsum.





Skrifa athugasemd