Maí
Við Fláajökul
Vid_Flaajokul
Við Fláajökul
Mynd 1 af 2
1 2

19.05.2005 Maí

Kynningarfundur um stofnun Jöklaseturs ses

Kynningarfundur um stofnun Jöklaseturs ses verður haldinn í Nýheimum mánudaginn 23. maí kl.20.00
Fundurinn hefst með ávarpi Alberts Eymundssonar fundarstjóra, Inga Jónsdóttir kynnir jöklasýninguna og Hermann Hansson verður með drög að skipulagsskrá. Síðan verða fyrirspurnir og umræður.
Ný og endurbætt Jöklasýning verður opnuð á Hornafirði þann 3. júní n.k. Samhliða breytingunum verður stofnuð sjálfseignarstofnun með eftirfarandi markmið;

  • Að stofna og reka Ís-land, jöklasýningu á Höfn á lifandi og áhugaverðan hátt, s.s. með breytilegum sýningum, fyrirlestrum, námskeiðum o.fl.
  • Að bjóða menningartengda ferðaþjónustu með sérhæfingu.
  • Að safna saman og miðla fróðleik um jökla, myndun þeirra og mótunaráhrif m.a. á land, gróðurfar og veður.
  • Að safna saman og miðla sögu og menningu sem tengist jöklum og lífi í nábýli þeirra.
  • Að hvetja til frekari vísindaiðkana og rannsóknarvinnu tengdum jöklum.
  • Að vinna í góðum tengslum við aðrar stofnanir og félög sem þessi málefni varða, hér á landi og erlendis.

Jöklasýning hefur verið mikilvægur þáttur í ferðamálum á svæðinu á undanförnum árum og verið góð viðbót við hina gróskumiklu ferðaþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu. Ef að líkum lætur mun endurbætt Jöklasýning renna enn styrkari stoðum undir ferðaþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu.

Aðild að stofnun setursins er öllum opin og einstaklingum og fyrirtækjum stendur til boða að gerast stofnaðilar. Til að gerast stofnaðili skal viðkomandi leggja að lámarki kr.10.000 í stofnfé stofnunarinnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica