Maí
Úðunarkefi Seljavellir
P1010179
Flugvél frá Albaníu

19.05.2005 Maí

Lenti á öðrum hreiflinum á Hornafjarðarflugvelli

Flugvél sem var að koma frá Albaníu lenti á Hornafjarðarflugvelli í gær eftir að erfiðleikar höfðu verið með eldsneyti vélarinnar og varð að drepa á öðrum mótornum en lending gekk vel. Flugmennirnir töldu að vatn væri í eldsneytinu sem þeir fengu í Albaníu og hefðu þeir lent í vandræðum á leiðinni vegna þess. Eftir að þeir voru búnir að hafa samband við Keflavíkurflugvöll og athuga stöðuna var vélin sett í gang og haldið áfram til Keflavíkur.

Flugvélin er af gerðinni Gruman Gulfstream, flutningavél og áhöfnin tveir bandarískir flugmenn. Tvær aðrar flugvélar, lítil cessna og eins hreifils flugbátur höfðu viðkomu á Hornafjarðarflugvelli í gær.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica