Kartöflugarðar úðaðir
Veðráttan undanfarið hefur ekki verið hagstæð fyrir kartöflubændur í Hornafirði því ekkert hefur rignt í lengri tíma og allt orðið mjög þurrt. Seljavallarbændur hafa brugðist við þessu með því að búa til vatnsúðunarkerfi sem nær yfir fjögurra hektara svæði. Vatni er dælt úr Laxá og úðað yfir kartöflur sem eru undir plasti, þar sem fyrst verður tekið upp í sumar segir Birna Jensdóttir á Seljavöllum. Þegar búið verður að taka upp kartöflur á þessu svæði verður úðunarkerfið flutt á næsta svæði. Verði tíðarfar hlýtt og gott á Birna von á að nýjar Gullauga- kartöflur komi frá þeim á markaðinn um miðjan júlí. Hún á von á að úðunin bæði flýti fyrir vexti og gæði kartaflanna verði betri og meiri.
Byrjað var í vor að setja niður í garða um 27.apríl sem er sviðaður tími og sett var niður í fyrra. Sett er niður í um 20 hektara lands.




Skrifa athugasemd