Maí
Göng
Göng
Göngin við Almannaskarð.
Mynd 1 af 3
1 2 3

17.05.2005 Maí

Malbikun í Almannaskarðsgöngum lokið

Malbikun i Almannaskarðsgöngum lauk í síðustu viku. Það er búið að vera allt á fullu við vegagerðina hér utan við göngin undanfarnar vikur og þetta hefur allt gengið mjög vel segir Björn A. Harðarson hjá GeoTek ehf sem sér um framkvæmdaeftirlit fyrir Vegagerðina. Rafvirkjar eru núna að vinna við að setja upp lýsingu í göngunum ásamt öðrum rafbúnaði. Verktakinn stefnir á að ljúka öllu sinu verki á tilsettum tíma samkvæmt verksamningi sem er 15. júní n.k. Þá verður eftir ýmis minni háttar frágangsvinna og nokkur atriði sem Vegagerðin sér um að ljúka. Björn segir að reiknað sé með að göngin verði tekin í notkun seinni hluta júní.

Allir starfsmenn við Almannaskarð voru í fríi um Hvítasunnuna nema rafvirkjar sem voru þar að störfum alla helgina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica