Skoðunarferðir í Ingólfshöfða byrjaðar
Varp í Ingólfshöfða byrjar seinna í vor en verið hefur og eru fáir lundar búnir að verpa og sama er að segja um máfana sem oft eru farnir að verpa um 20.apríl. Sigurður í Hofsnesi telur að það sé sjávarkuldi sem verið hefur á svæðinu við höfðann sem þessu valdi en hvergi nokkurn staðar við Ísland er sjórinn eins heitur og við Ingólfshöfða og þar hefur varp byrjað fyrr en annarsstaðar á landinu. Um 50 þúsund lundapör verpa í Ingólfshöfða en í heild er talið að um 400 þúsund lundar séu þar. Lundarnir fara ekki að verpa fyrr en þeir eru orðinn 5-8 ára og þeir verða 40-60 ára gamlir. Fuglalíf er afskaplega fjölskrúðugt í höfðanum einkum sjófugla og er þar langmest af lunda. Sigurður sagði að skoðunarferðir í Ingólfshöfða væru byrjaðar og er farið frá Hofsnesi kl.11 alla daga.
Farið er með ferðahópa á heyvagni sem dreginn er á dráttarvél yfir leirurnar og er það um hálftíma ferð, síðan gengið bratta sandöldu upp í höfðann. Skoðunarferð um höfðann tekur um tvær klukkustundir. Það er alveg meiri háttar að hlusta á Sigurð í Hofsnesi þegar hann er að segja ferðafólki sögu Ingólfshöfða sagði fólk sem fór með honum í höfðann, það er hreint eins og að koma inn í ævintýraheim. Sigurður hefur nú fengið Einar son sinn og tengdadótturina Matthildi til liðs við sig og skipta þau með sér ferðum eftir því sem hentar.





Skrifa athugasemd