Maí
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)
Himnaríki á jörð/ Heaven on earth
Himnaríki á jörð (@Skaftafell) [myndasafn]

13.05.2005 Maí

Margmiðlunardiskur valinn til þátttöku í landskeppni



Disklingur sem kostaður var af Ferðamálasamtökum Austurlands og inniheldur kynningarefni úr fjórðungnum, var valinn ásamt fimmtán öðrum margmiðlunardiskum til áframhaldandi þátttöku í landskeppni Nýmiðlunarkeppni Sameinuðu þjóðanna. Tildrög þessa eru þau að í fyrra var farið af stað hjá hagsmunafélögum ferðaþjónustunnar á Austurlandi, (Markaðsstofu Austurlands og Ferðamálafélagi Austur- Skaftafellssýslu) með að vinna kynningaefni fyrir VestNorden ferðakaupstefnuna. Fram að þeim tíma voru prentaðar ferðahandbækur og þær teknar með á staðinn þar sem VestNorden er haldin hverju sinni, þ.e. Ísland, Færeyjar og Grænland.Þetta þótti þungt í vöfum og niðurstaðan sú að kaupendur kusu að fá efnið sent seinna í stað þess að taka með sér pappírsbunkana. Til að losna við þetta og gera lífið auðveldara fyrir alla kom sú hugmynd að yfirfæra myndbandið Austurland sem gert var fyrir nokkrum árum og þjónustuskrá yfir alla þjónustu á svæðinu, á stafrænt form og þessi velheppnaði diskur er árangurinn.

Disklingurinn verður ásamt 15 öðrum tilnefningum sýndur í Öskju - náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands þann 21. maí næstkomandi. Þá kemur í ljós hvaða afurðir verða sendar áfram af Íslands hálfu í aðalkeppnina í Túnis í haust.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica