Niðurstaða aðalfundar að halda áfram með markaðstorg
Aðalfundur Markaðstorgs Hornafjarðar var haldin að Hótel Höfn fimmtudaginn 7.apríl. Á fundinum komu fram ýmsar tölulegar upplýsingar um reksturinn svo sem yfirlit um fjölda markaða og þátttakendur frá upphafi markaðhalds. Á árinu 2003 voru haldnir 6 markaðir og þátttakendur voru um 120. Á árinu 2004 voru haldnir 10 markaðir með 170 þátttakendum. Það var niðurstaða aðalfundarins að halda áfram með þetta skemmtilega verkefni og bjóða upp á árstíðabundna markaði. Næstur er vormarkaður sem haldin verður núna á laugardaginn 14. maí, tvöfaldur sumar-Humarhátíðarmarkaður föstudaginn 1. júlí og laugardaginn 2. júlí. Uppskeru og haustmarkað í október, jólamarkaði í desember og vetrarmarkað í mars.
Markaðstorg Hornafjarðar er tilraunaverkefni hóps fólks sem vill, glæða samfélagið lífi, veita frumkvöðlum, handverksfólki og bændum aðstöðu til að selja og kynna framleiðslu sína, stuðla að endurnýtingu hluta og muna.
Þeim sem hafa áhuga á að vera með á markaðnum á 14. maí næstkomandi vinsamlegast hafið samband við Maríu í símum 478 1840 og 865-2489.





Skrifa athugasemd