Námskeið í viðburðastjórnun í Nýheimum
Miðvikudaginn 11.maí verður í Nýheimum námskeið í viðburðastjórnun. Kennari á námskeiðinu er Guðný Dóra Gestsdóttir ferðamálafræðingur. Á námskeiðinu verður farið í skipulagningu margskonar viðburða sem haldnir kunna að verða í sveitarfélaginu t.d. menningar-, bæjar-, íþrótta-, skemmti-, eða afmælishátíðir svo eitt hvað sé nefnt. Það eru mikil tækifæri fólgin í því að setja upp viðburði, segir Guðný og það er ákveðin aðferð í markaðssetningu og mikilvægt að vel sé staðið að öllum undirbúningi, skipulagningu og markaðssetningu. Það eru fjölmargir í byggðarlaginu sem njóta hagsmuna í tengslum við svona viðburði og það eru alþekkt þessi margfeldis áhrif t.d. nýtist mörgum ef margir gestir koma á staðinn á viðburðinn. Það er einnig mjög góð kynning á bænum ef vel tekst til og vel er haldið á málum í allri skipulagningu. Mikilvægt er að temja sér fagleg vinnubrögð sem um leið létta allan undirbúning og þeim tíma sem fólk ver í undirbúning tímanlega er gríðarlega vel varið. Það skiptir miklu máli að þeir sem eru að skipuleggja viðburð gefi sér þann tíma sem þarf í undirbúninginn og að kortleggja alla þá þætti sem skipta máli.
Guðný Dóra var nýlega með námskeið á Austurlandi á vegum Fræðslunets Austurlands og var það vel sótt einnig hefur hún verið með námskeið hjá endurmenntunardeild Háskólans. Hún hefur sérhæft sig í viðburðarstjórnun og hefur komið að skipulagningu og stjórnun ýmissa viðburða s.s. Víkingahátíðar í Hafnarfirði, Laxneshátíðar í Mosfellsbæ auk smærri hátíða og núna er hún forstöðumaður Gljúfrasteins safns Laxness.
Það er Hornfirska skemmtifélagið sem stendur fyrir námskeiðinu og eru allar upplýsingar um það í síma 478-2052. Námskeiðsgjald er kr.8.500.





Skrifa athugasemd