Sumarið lítur mjög vel út
Ferðaþjónustan er byrjuð á fullu á Smyrlabjörgum í Suðursveit. Þetta er búið að vera óvenju mikið undanfarið og má heita fullbókað fyrir maí sem er mun fyrr en áður segir Laufey Helgadóttir hótelstjóri. Sumarið lítur mjög vel út, miklu betur en áður fyrir ferðaþjónustuna þar sem hún lengist um hátt í mánuð í báða enda því það er nánast allt fullt út september og gæti náð fram í október. Meistarakokkurinn Kristján Guðnason verður hjá okkur í sumar en eins og flestir sem hann þekkja vita þá er hann er snillingur þegar kemur að matseld. Um helgina verður glæsilegt kaffihlaðborð á Smyrlabjörgum með allskonar gómsætum hnallþórum og ýmsu öðru góðgæti, og það er enginn svikinn af tertunum hennar Laufeyjar.
Hlaðborðið verður á sunnudaginn milli kl. 14?17 og upplagt fyrir þá sem fara í sunnudagsökuferð að koma við og fá sér hressingu í vinalegu umhverfi. Fyrir fullorðna kostar kaffið 1150 kr. frítt fyrir börn sex ára og yngri og kr. 650 fyrir börn 7-12 ára.




Skrifa athugasemd