Maí
Grænlendingar
Grænlendingar
Grænlensku krakkarnir ásamt Guðmundi Inga fóru í heimsókn s.l. mánudag upp í Ráðhús og hittu Albert bæjarstjóra og Stefán Ólafsson.
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

04.05.2005 Maí

ISLANDIMUT ANGALNEQ - Skólaheimsókn frá Grænlandi

Á föstudaginn í síðustu viku kom 30 manna hópur grunnskólabarna, (9. bekkur) ásamt kennurum frá Grænlandi í heimsókn hingað til Íslands. Heimsóknin er í boði bæjarstjórnar Hornafjarðar, en Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla hitti hópinn í Reykjavík og fræddi hann um það sem fyrir augu bar á leiðinni þaðan hingað austur. Hér skal koma fram að heimsbær barnanna, Sisimut, er einmitt vinabær Hafnar. Fyrst var farið til Reykjavíkur þar sem nýuppgert Þjóðminjasafnið var skoðað. Síðan var farið sem leið liggur að Þingvöllum og yfir að Laugarvatni. Þá áfram austur að Geysi og svo að Gullfossi. Sennilega voru þetta mikil undur að sjá fyrir gestina því fossar eru sjaldséðir á Grænlandi og hverir finnast alls ekki. Eftir stans var svo enn haldið áfram í austurátt allt að Hofi í Öræfum og þar var gist. Á mánudaginn voru svo allir hér á Höfn og fyrir hádegi kom hópurinn til að heilsa upp á jafnaldra sína í Heppuskóla.

Það tækifæri nýtti Árni Pétur Hilmarsson kennari og tók einn kennarann, Söru Stephansen, tali og þar kom m.a. þetta fram: "Við lögðum af stað að heiman þann 25. apríl og rétt náðum til Kangerlussuaq, en þaðan var flogið til Kaupmannahafnar, í tæka tíð" sagði Sara.
Sara, sem er dönsk, upplýsir að í Sisimut búi um 5000 manns og þar sé ein öruggasta höfn Grænlands því hún helst opin allt árið sem er ómetanlegt í þessu stóra kalda landi. Í bænum er fyrirtækið Royal Greenland með verksmiðju og er unnin rækja og krabbi. Þetta er stærsti vinnustaðurinn í bænum.
Íbúarnir hafa aðgang að sinni KNI verslun, en á Grænlandi er bundið í lög að sérhvert byggðarlag í landinu hafi aðgang að slíkri verslun sama hversu fámennt það er.Þar eru allar helstu nauðsynjar á boðstólum. Því má bæta við að í Sisimut eru aðalstöðvar verslunarkeðjunnar. Til að ferðin yrði farin þurftu nemendur að afla fjár. Það gerðu þau með því að bera út auglýsingar í öllum veðrum frá verslunum á staðnum í heila sex mánuði. Þannig safnaðist um 1 milljón ísk. Króna. Einnig var verkefnið styrkt af samtökunum Nordplus Junior ásamt því að krakkarnir borguðu hluta úr eigin vasa.
Hér á Höfn er fæði og gisting fyrir hópinn í boði Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Nemendur og kennarar skólans í Sisimut fræddust um starf kennara hér og eins og við vitum er alltaf gaman að bera saman aðstæður á milli ólíkra staða Einnig hittu krakkarnir jafnaldra sína. Heimsóknir af þessi tagi eru af hinu góða og allir læra af. Vinabæjarbörnin okkar og kennarar þeirra verða hér fram á föstudag, en þá fara þeir til Reykjavíkur áður en haldið er heim til Grænlands.

[-g Heppuskóli]

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica