Maí
Gróðurmold
Gróðurmold
Hægt er að nálgast gróðurmold norðan við gatnamót Fákaleiru og Álaleiru
Mynd 2 af 2
1 2

04.05.2005 Maí

Hreinsunardagar á Höfn og í Nesjum

Næsta laugardag er árlegur hreinsunardagur á Höfn og í Nesjum og eru allir hvattir til þess að taka til í görðum sínum og næsta nágrenni. Hreinsunardeild bæjarins mun síðan fara af stað eftir hádegi og safna saman garðaúrgangi sem skilin hefur verið eftir við gangstéttarbrún. Víða um bæinn má sjá að menn eru þegar byrjaðir að ná í gróðurmold til að setja í beðin. Eins og undanfarin ár þá er hægt er að nálgast gróðurmold norðan við gatnamót Fákaleiru og Álaleiru. Samkvæmt upplýsingum veðurstofunnar þá er búist við góðu og björt veðri í Sveitarfélaginu næstu helgi og aldrei að vita nema við fáum tveggja stafa hitatölu.

Í sumar gefst íbúum kostur á að leigja matjurtagarða eins og s.l. sumur. Matjurtagarðarnir verða á sama stað og í fyrra þ.e. austan við ,,brennuhólinn" gegnt gömlu Mjólkurstöðinni. Sækja þarf um garð á bæjarskrifstofu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica