Maí

Grásleppuveiðar

Grásleppuvertíð og þarastönglar - 31.05.2005 Maí

Grásleppuvertíðin var með stysta móti þetta árið eða frá 29. mars til 28. maí enda samstaða um að draga úr veiðum vegna mikilla birgða og lágs verðs á grásleppuhrognum. Tveir Hornafjarðarbátar stunduðu veiðarnar frá Djúpavogi, Siggi Bessa Sf og Benni Sf sem báðir lögðu netin 29.mars s.l. Berfirðingar buðu okkur hjartalega velkomna segir Friðþór Harðarson á Benna og þökkuðu okkur fyrir að hreinsa þarann úr firðinum og það líka óumbeðið, það þyrfti að borga þeim mikið til að þeir kæmu til að hreinsa þarann úr Hornafirði, það vantar ekki spaugið fyrir austan. Veiðin var heldur minni per dag miðað við árið á undan en veðrið hafði líka áhrif á veiðarnar og voru netin dreginn tvisvar upp, minnugir þarastönglana árinu á undan. En setji upp sjó þ.e. sjólag vesnar og netin væru á grunnu vatni fyllist allt af þarastönglum eins og sjá má á myndunum sem fylgja þessari frétt. Friðþór segir þá líka hafa lagt inn á Breiðdalsvík, Kambavík og einnig lagði Unnsteinn á Sigga Bessa í Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði. Lagt var fyrir hákarl út af Krossi á Berufjarðarströnd en við urðum ekki varir. Lesa meira
 
Helga_RE49

Nýtt skip í skipaflota Skinneyjar Þinganess - 31.05.2005 Maí

Nýtt skip bættist í skipaflota Skinneyjar Þinganess í gær þegar gengið var frá kaupsamningi á fiskveiðiskipinu Helgu RE 49. Með skipinu fylgja aflaheimildir. Helga RE er smíðuð í Kína 2001, 327 brúttótonn, lengd 28,62 og breidd 9,17m. Skipið verður afhent nýju eigendunum 15.ágúst. Gunnar Ásgeirsson hjá Skinney Þinganesi segir að skipið verði gert út frá sinni heimahöfn, Hornafirði. Skinney Þinganes hefur rekið fiskvinnslu á Reyðarfirði en nú hefur starfsfólki þar verið sagt upp og vinnslu verður hætt. Gunnar segir að öll fiskvinnsla verði hjá fyrirtækinu hér á Hornafirði. Lesa meira
 
Ofurhaninn

Ofurhaninn Loftur og barátta hans við ill öfl - 30.05.2005 Maí

Tveir ungir menn í Hafnarskóla, Ásgrímur Arason og Bragi Emilsson hafa í vetur samið fimm teiknimyndasögur um Ofurhanann Loft og baráttu hans við ill öfl. Einnig gerður þeir félagar eina teiknimyndasögu um Sigurð Fáfnisbana. Bækurnar um Ofurhanann Loft er hægt að fá lánaðar í bókasafni Hafnarskóla og hafa þær verið vinsælustu og mest eftirsóttustu bækur safnsins í vetur og svo vinsælar að það hafa myndast biðlistar eftir að fá þær lánaðar. Frá því að fyrsta bókin kom út í nóvember hafa krakkarnir beðið spennt eftir framhaldinu en fimmta og síðast bókin, Litli páskahérinn sem er mest spennandi, kom út eftir páskana. Höfundarnir eru að vonum ánægðir með þessar góðu viðtökur. Þeir segjast skipta með sér verkum þannig að Bragi skrifar söguna og Ásgrímur teiknar og bækurnar hafa þeir alveg unnið í skólanum. Lesa meira
 
Fjöldi manns mætti til að fagna við Almannaskarð

Opnun á göngunum undir Almannaskarð 24. júní n.k. - 27.05.2005 Maí

Ákveðið er að formleg opnun á göngunum undir Almannaskarð verði 24. júní. Athöfnin hefst við göngin og eftir að þau hafa formlega verið opnuð verður haldið á Hótel Höfn þar sem opnunarhátíðin heldur áfram. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að ekki sé endanlega frágengið hvernig dagskráin verður og m.a. er verið er að koma því heim og saman hver fær að aka vígsluferðina í gegn um göngin. Byrjað var á miðvikudag að setja bundið slitlag á veginn norðan ganganna og að því loknu verður lagt á veginn sunnanmegin og inn fyrir Dynjanda. Starfsmenn í göngunum eru nú að leggja lokahönd á þessa miklu framkvæmd sem hófst 16. apríl 2004 eftir að Sturla Böðvarsson hafði sprengt fyrstu hleðsluna. Lesa meira
 
Jöklasýning, ný

Íshellirinn kemur frá Pinewood Studios - 27.05.2005 Maí

Það er óhætt að segja að að það hefur verið líf og kraftur í húsakynnum Jöklasýningarinnar við Hafnarbraut 30 undanfarið þar sem verið er að undirbúa opnun sýningarinnar eftir umfangsmiklar breytingar. Síðustu daga hafa menn frá Sviðsmyndum unnið að uppsetningu á sviði með jökulsprungu fjalla- og jöklakofa o.fl. og í gær komu fimm Bretar með íshelli sem þeir eru byrjaðir að setja upp. Íshellirinn er unninn í Pinewood Studios í Englandi þar sem sviðsmynd fyrir James Bond er einnig gerð. Sýningargestir geta sem sagt gengið um íssprungu, inn í íshelli og jöklakofa og upplifað jöklastemningu Stefnt er á að allt verði tilbúið í lok næstu viku þegar þessi nýja og endurbætta jöklasýning verður formlega opnuð föstudaginn 3.júní á Höfn og verður opin allt árið frá og með 4. júní nk. Í boði er upplifun, fræðsla um náttúruna á þessum slóðum og jöklafræði fyrir gesti með mismunandi undirbúningsþekkingu. Ein bíómynd er sýnd á stóru tjaldi og þrjár nýjar verða sýndar á 42” skjám. Lesa meira
 
Freysnes, framkvæmdir

Nýju húsin í Freysnesi munu standast öll veður - 26.05.2005 Maí

Hús í Freysnesi sem fauk til á grunninum í fárviðrinu sem þar varð í vetur hefur verið fjarlægt og því komið fyrir neðan við söluskálann og þegar viðgerð á því líkur verður það notað fyrir starfsfólk hótelsins. Á mánudaginn voru fimm húseiningar settar upp þar sem húsið stóð og í þeim verða tíu eins manns herbergi með baði. Þetta verða mjög notaleg herbergi þó þau séu ekki stór og rúmin þar eru breiðari en þessi venjulegu rúm og betri segir Anna María hótelstjóri í Freysnesi. Húsaeiningarnar eru Tékkneskar, samskonar og áður hafa verið settar upp við hótelið. Anna María á von á að þessi hús muni standast öll veður þar sem hver eining sé um 7 tonn. Í Freysnesi er gistirými fyrir 130 manns. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 26.maí 2005 kl. 06:44

Ef ekkert rignir það sem eftir er maí gæti stefnt í met úrkomuleysi - 26.05.2005 Maí

Hornfirðingar eru farnir að bíða eftir að fari að rigna, ekki smá skúri heldur alvöru rigningu, nokkuð sem ekki skeður oft á þessum landshluta. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að engin úrkoma sé í spám fram á þriðjudag að því undanteknu að spáð sé lítilsháttar úrkomu í skúraformi á föstudag, þó ekkert sem gagn er að. Spáð er að veður fari heldur hlýnandi. ,,Þetta er alveg ótrúlegt” sagði Einar þegar hann fór að skoða úrkomutölur frá Akurnesi síðustu fimm vikurnar, síðasta úrkoma sem mældist í Akurnesi sem eitthvað kvað að var aðfaranótt 15.maí 1.5 mm sem ekki þykir mikið í Hornafirði. Smávegis rigndi 1. og 2. maí og er samanlögð úrkoma í maí 4 mm í nokkrum örskömmtum og ef ekkert rignir það sem eftir er maí gæti stefnt í met úrkomuleysi. Einar segir að síðast hafi rignt eitthvað sem heitið getur 18.apríl en þá mældist úrkoman 40 mm síðan ekkert rignt að gagni. Lesa meira
 
Gólfefni og þrif

Gólfefni og þrif flytur í nýtt húsnæði - 25.05.2005 Maí

Verslunin Gólfefni og þrif hefur flutt sig um set, af Álaugarvegi 1 í rúmgóð húsakynni á Vesturbraut 2 þar sem Ljósey var áður. Það var löngu orðið alltof þröngt um okkur þarna útfrá á 74 fermetra plássi þar sem vöruvalið er alltaf að aukast segir Þorgeir Kristjánsson sem rekur verslunina ásamt konu sinni Áslaugu Einarsdóttur. Nýi staðurinn er 152 ferm. svo nú eru vörurnar farnar að sjást og það er notalegt að geta boðið viðskiptavinunum upp á góða aðstöðu segir Þorgeir. Nú þegar plássið leyfir verður vöruflokkum trúlega fjölgað, en þær vörur sem Þorgeir og Ása eru með eru; gólfteppi, gólfdúkar og yfirleitt öll þau gólfefni sem á markaði eru. Gólfefnin panta þau eftir óskum og þörfum hvers og eins og kemur varan á staðinn næsta dag og er verð þess það sama og í Reykjavík. Svo eru það hreinlætis-rekstrarvörurnar fyrir ferðaþjónustur, fyrirtæki og einstaklinga, umhverfisvænar Tandur-vörur ásamt ýmsum erlendum umhverfisvænum vörum. Lesa meira
 
Flosalaug, Svínafelli Öræfum

Besti maímánuðurinn í ferðaþjónustunni frá byrjuðum - 24.05.2005 Maí

Þetta hefur verið einn besti maímánuðurinn í ferðaþjónustunni hjá okkur frá því við byrjuðum segir Ólafur Sigurðsson í Svínafelli. Mikill straumur fólks hefur verið á Öræfajökul og Hvannadalshnúk síðan fyrir Hvítasunnu og hefur yfirleitt viðrað vel til þeirra ferða og vel bjart á jöklinum. Ekki hefur verið jafn gott skyggni yfir Skeiðarársandi því þar hefur legið ryk og sandmökkur yfir undanfarna daga og sér ekki í Lómagnúp segir Ólafur og hann segir fínt ryk frá sandinum berast yfir sveitina þegar allt sé orðið svona þurrt. Búið er að fá nýjan heitapott við sundlaugina í Svínafelli í stað þess sem fauk í vetur og hafnaði stórskemmdur úti í sundlauginni. Lesa meira
 
Krakkar í Heppuskóla

Sáu sjálf um allt frá upptöku til klippingar - 24.05.2005 Maí

8. bekkur Heppuskóla hefur í vetur unnið að gerð forvarnarmyndbanda og var afraksturinn sýndur í síðustu viku í Sindrabæ. Búnir voru til sex flokkar af myndum sem fjölluðu um eiturlyf, útivist, samskipti, reykingar,áfengi og einelti. Krakkarnir hafa lagt mikla og góða vinnu í þetta verk og var útkoman mjög skemmtileg og sýndu að þau hafa auðugt ímyndunarafl. Krakkarnir gerðu handritin sjálf og sáu þau sjálf um allt frá upptöku til klippingar. Það má draga ýmiskonar lærdóm af því að vinna svona verk, ekki bara þann boðskap sem myndirnar bera í sér, heldur líka gott samstarf og alla þá tæknilegu vinnu sem þarf að ná tökum á við gerð svona mynda. Valin var besta myndin og skemmtilegasta hugmyndin og fengu þeir krakkar sem voru í þeim hópum pizzuveislu að launum. Lesa meira
 
Flugvöllurinn við Freysnes

Óskað eftir skráningu flugbrautar í Freysnesi - 23.05.2005 Maí

Á síðasta fundi Bæjarráðs Hornafjarðar var tekið fyrir bréf frá Önnu Maríu Ragnarsdóttur í Freysnesi, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins varðandi umsókn um skráningu flugbrautar í landi Feysness. Kom fram að brautin er á aðalskipulagi og þar hefur áður verið starfsemi þrátt fyrir að völlurinn væri ekki skráður. Ný reglugerð um flugvelli gerir ráð fyrir að sveitarfélag veiti umsögn um slíka umsókn en sambærilegt mál hefur ekki áður komið til kasta flugmálastjórnar. Hjalti Þór Vignisson taldi að ekki yrði neytt því til fyrirstöðu að afgreiða þetta mál og vísaði Bæjarráð málinu til starfsmanna og afgreiðslu á næsta fundi. Tvær flugbrautir eru á flugvellinum í Freysnesi, gömul braut 6-700 metrar og aðalbrautin sem er 1000 metra löng. Lesa meira
 
Fegurð í Austur-Skaftafellssýslu

Kynningardiskur ferðaþjónustunnar til Túnis - 23.05.2005 Maí

Á laugardaginn var tilkynnt í Öskju náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands um hvað átta nýmiðlunarverkefni fara fyrir hönd Íslands í nýmiðlunarkeppni sameinuðu þjóðanna. Keppnin verður haldin í Túnis í haust og þetta er í fyrsta sinn sem hún er haldin. Keppt er í 8 flokkum og einn þeirra er Viðskipti (e Buisness). Þar varð fyrir valinu kynningardiskur ferðaþjónustunnar á Austurlandi, Ferðamálasamtaka Austurlands og starfsmaður Markaðsstofu Austurlands, Katla Steinson sá um alla kynningu fyrir fjórðunginn með þessum góða árangri. Lesa meira
 
Mynd 11

Búið er að opna ferðaþjónustuna við Jökulsárlón - 20.05.2005 Maí

Búið er að opna ferðaþjónustuna við Jökulsárlón. Starfsemin verður með hefðbundnu sniði svo sem verið hefur og stefnt er á að bæta við einu hjólaskipi í júlí og ágúst í siglingar um lónið. Ferðafólki sem fer í siglingu um lónið hefur fjölgað ár frá ári og í fyrra komu þar rúmlega 40 þúsund manns. Starfsmenn verða 28 í sumar og sagði Einar Björn Einarsson skipstjóri og staðarhaldari að enn vantaði fólk til starfa við lónið. Starfsmenn þurfa að hafa góða tungumálakunnáttu og þjónustulipurð. Hjólaskipin þrjú sem notuð hafa verið í siglingarnar taka 25 farþega hvert og eru ferðir um lónið eftir aðsókn hverju sinni og þegar mest hefur verið að gera hefur verið siglt með um 800 manns á dag. Mikill ís hefur verið á lóninu í vor og ekki fært bátum en er orðið vel siglingarfært núna. Í veitingasölunni verður sem fyrr boðið upp á hina heimsfrægu sjávarréttasúpu sem verið hefur sérlega vinsæl þar ásamt úrvali af smurðu brauði. Lesa meira
 
Við Fláajökul

Kynningarfundur um stofnun Jöklaseturs ses - 19.05.2005 Maí

Kynningarfundur um stofnun Jöklaseturs ses verður haldinn í Nýheimum mánudaginn 23. maí kl.20.00 |nl|Fundurinn hefst með ávarpi Alberts Eymundssonar fundarstjóra, Inga Jónsdóttir kynnir jöklasýninguna og Hermann Hansson verður með drög að skipulagsskrá. Síðan verða fyrirspurnir og umræður. |nl|Ný og endurbætt Jöklasýning verður opnuð á Hornafirði þann 3. júní n.k. Samhliða breytingunum verður stofnuð sjálfseignarstofnun með eftirfarandi markmið; |nl|-Að stofna og reka Ís-land, jöklasýningu á Höfn á lifandi og áhugaverðan hátt, s.s. með breytilegum sýningum, fyrirlestrum, námskeiðum o.fl. Lesa meira
 
Úðunarkefi Seljavellir

Lenti á öðrum hreiflinum á Hornafjarðarflugvelli - 19.05.2005 Maí

Flugvél sem var að koma frá Albaníu lenti á Hornafjarðarflugvelli í gær eftir að erfiðleikar höfðu verið með eldsneyti vélarinnar og varð að drepa á öðrum mótornum en lending gekk vel. Flugmennirnir töldu að vatn væri í eldsneytinu sem þeir fengu í Albaníu og hefðu þeir lent í vandræðum á leiðinni vegna þess. Eftir að þeir voru búnir að hafa samband við Keflavíkurflugvöll og athuga stöðuna var vélin sett í gang og haldið áfram til Keflavíkur. Lesa meira
 
Úðunarkefi Seljavellir

Kartöflugarðar úðaðir - 19.05.2005 Maí

Veðráttan undanfarið hefur ekki verið hagstæð fyrir kartöflubændur í Hornafirði því ekkert hefur rignt í lengri tíma og allt orðið mjög þurrt. Seljavallarbændur hafa brugðist við þessu með því að búa til vatnsúðunarkerfi sem nær yfir fjögurra hektara svæði. Vatni er dælt úr Laxá og úðað yfir kartöflur sem eru undir plasti, þar sem fyrst verður tekið upp í sumar segir Birna Jensdóttir á Seljavöllum. Þegar búið verður að taka upp kartöflur á þessu svæði verður úðunarkerfið flutt á næsta svæði. Verði tíðarfar hlýtt og gott á Birna von á að nýjar Gullauga- kartöflur komi frá þeim á markaðinn um miðjan júlí. Hún á von á að úðunin bæði flýti fyrir vexti og gæði kartaflanna verði betri og meiri. Lesa meira
 
Björgunarbátur

Rekstrarleiga á björgunarbátum - 18.05.2005 Maí

Bátaeigendur á Hornafirði geta nú nýtt sér nýja þjónustu sem Ísfell er komið á stað með og |nl|býður nú fyrst íslenskra fyrirtækja rekstrarleigu á björgunarbátum, en löng hefð er fyrir slíku í nágrannalöndum okkar. Í Bretlandi er það t.d. algengasta fyrirkomulagið að fyrirtæki leigi björgunarbáta en eigi þá ekki. Þýsku DSB björgunarbátarnir, sem Ísfell býður á leigu, hafa verið á íslenska markaðnum í fjölda ára, þeir eru mjög vandaðir og viðurkenndir af Siglingamálastofnun. |nl| |nl|Björgunarbátar sem komir eru til ára sinna þurfa að ganga árlega í gegnum mjög kostnaðarsamar skoðanir. Slíka báta er í mörgum tilfellum hagkvæmara að taka strax úr notkun og taka í staðinn nýjan bát á rekstrarleigu. Sama gildir þegar þörf er á að kaupa nýja björgunarbáta, þar er rekstrarleigan mjög hagkvæmur valkostur. Lesa meira
 
Göng

Malbikun í Almannaskarðsgöngum lokið - 17.05.2005 Maí

Malbikun i Almannaskarðsgöngum lauk í síðustu viku. Það er búið að vera allt á fullu við vegagerðina hér utan við göngin undanfarnar vikur og þetta hefur allt gengið mjög vel segir Björn A. Harðarson hjá GeoTek ehf sem sér um framkvæmdaeftirlit fyrir Vegagerðina. Rafvirkjar eru núna að vinna við að setja upp lýsingu í göngunum ásamt öðrum rafbúnaði. Verktakinn stefnir á að ljúka öllu sinu verki á tilsettum tíma samkvæmt verksamningi sem er 15. júní n.k. Þá verður eftir ýmis minni háttar frágangsvinna og nokkur atriði sem Vegagerðin sér um að ljúka. Björn segir að reiknað sé með að göngin verði tekin í notkun seinni hluta júní. Lesa meira
 
Ingólfshöfði (Mynd Einar Sig.)

Skoðunarferðir í Ingólfshöfða byrjaðar - 13.05.2005 Maí

Varp í Ingólfshöfða byrjar seinna í vor en verið hefur og eru fáir lundar búnir að verpa og sama er að segja um máfana sem oft eru farnir að verpa um 20.apríl. Sigurður í Hofsnesi telur að það sé sjávarkuldi sem verið hefur á svæðinu við höfðann sem þessu valdi en hvergi nokkurn staðar við Ísland er sjórinn eins heitur og við Ingólfshöfða og þar hefur varp byrjað fyrr en annarsstaðar á landinu. Um 50 þúsund lundapör verpa í Ingólfshöfða en í heild er talið að um 400 þúsund lundar séu þar. Lundarnir fara ekki að verpa fyrr en þeir eru orðinn 5-8 ára og þeir verða 40-60 ára gamlir. Fuglalíf er afskaplega fjölskrúðugt í höfðanum einkum sjófugla og er þar langmest af lunda. Sigurður sagði að skoðunarferðir í Ingólfshöfða væru byrjaðar og er farið frá Hofsnesi kl.11 alla daga. Lesa meira
 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)

Margmiðlunardiskur valinn til þátttöku í landskeppni - 13.05.2005 Maí

Disklingur sem kostaður var af Ferðamálasamtökum Austurlands og inniheldur kynningarefni úr fjórðungnum, var valinn ásamt fimmtán öðrum margmiðlunardiskum til áframhaldandi þátttöku í landskeppni Nýmiðlunarkeppni Sameinuðu þjóðanna. Tildrög þessa eru þau að í fyrra var farið af stað hjá hagsmunafélögum ferðaþjónustunnar á Austurlandi, (Markaðsstofu Austurlands og Ferðamálafélagi Austur- Skaftafellssýslu) með að vinna kynningaefni fyrir VestNorden ferðakaupstefnuna. Fram að þeim tíma voru prentaðar ferðahandbækur og þær teknar með á staðinn þar sem VestNorden er haldin hverju sinni, þ.e. Ísland, Færeyjar og Grænland.Þetta þótti þungt í vöfum og niðurstaðan sú að kaupendur kusu að fá efnið sent seinna í stað þess að taka með sér pappírsbunkana. Til að losna við þetta og gera lífið auðveldara fyrir alla kom sú hugmynd að yfirfæra myndbandið Austurland sem gert var fyrir nokkrum árum og þjónustuskrá yfir alla þjónustu á svæðinu, á stafrænt form og þessi velheppnaði diskur er árangurinn. Lesa meira
 
Hvannadalshnúkur

Héldu ró sinni og góða skapinu þrátt fyrir mjög kaldar og erfiðar aðstæður - 12.05.2005 Maí

Aldrei hefur verið eins mikill áhugi á ferðum á Hvannadalshnúk og núna um Hvítasunnuna. Hjá ferðaaðilum sem standa fyrir þessum ferðum eru um eitthundrað manns búið að greiða staðfestingagjöld og svo er hópur leiðsögumanna þar að auki. Einar R. Sigurðsson fjallaleiðsögumaður í Hofsnesi fer með einn hóp og segir hann að reglan sé að hver atvinnuleiðsögumaður taki átta manna hóp í svona ferðir. Mikil nauðsyn er á að svona ferðir séu vel undirbúnar og fólk fari eftir leiðbeiningum um réttan búnað. Einar er nýkominn úr einum svona leiðangri er hann fór sl. þriðjudag ásamt Jökli Bergmann fjallaleiðsögumanni með tíu manna hóp og var ferðinni heitið á Hvannadalshnúk, vel leit út með veður og spáin var góð. Farið var upp Sandfellsleiðina sem er mjög þægileg leið og ekki mikill bratti fyrr en nálgast rætur Hnúksins. Þegar kom upp á jökulinn var kominn um hálfsmetra djúpur jafnfallinn snjór og þegar nálgaðist hlíðar Hvannadalshnúks var komið kolvitlaust veður 20-25 m. mikil snjókoma og skafrenningur. Lesa meira
 
Ragnar Frank, þjóðgarðsvörður

Bandaríkin 10-15 árum á undan okkur bæði í sóma og ósóma - 11.05.2005 Maí

Dagana 5.-7.maí var haldin í Freysnesi ráðstefna á vegum Umhverfisráðuneytisins og Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem mættu 110 manns frá níu þjóðlöndum. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður segir að þar hafi m.a.verið rætt um þjóðgarða og gildi þeirra, ekki síst til heilsueflingar. Nú eru menn farnir að hugsa um að útivist og náttúruleg útivistarsvæði geta stuðlað að meiri og betri vellíðan fólks í hverju landi, bæði andlega og líkamlega heilsu þess. Sýndar voru myndir frá Bandaríkjunum frá 1991 en þá voru 3-4 ríki þar sem var offituvandamál, síðan komu myndir frá 2003 og þá var þetta offituvandamál komið um öll Bandaríkin. Eins og við vitum þá eru Bandaríkin 10-15 árum á undan okkur bæði í sóma og ósóma og þetta er skelfileg þróun sem þarf að snúa við og þarna kom fram að norræn ríki þurfi að horfast í augu við aukin vandamál vegna offitu og að nútíma lífstíll einkennist af hreyfingarleysi. Lesa meira
 
Á Hornafjarðarflugvelli

Flugsamgöngur verði eins og best verður kosið - 11.05.2005 Fréttir fruma

Fyrsti fundur samgönguhóps innan ferðaþjónustu-klasans var haldin 19. apríl í Nýheimum. Byrjað var á að fara lauslega yfir þá vinnu sem búið var að vinna í klasa-verkefninu og skoða hvernig samgöngumál hafa bein áhrif á ferðaþjónustuna. Þá var á fundinum sérstaklega farið yfir flugsamgöngur því mjög mikilvægt er fyrir uppbyggingu ferðaþjónustunnar á svæðinu að flugsamgöngur verði eins og best verður kosið og þróun flugmála verði í samræmi við aðra þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Fram kom í máli fundarmanna að frá árinu 2000–2004 hafi farþegum fækkað um 11.000 eða úr 20.000 farþegum niður í 9.000 farþega. Þessi þróun á sér stað á sama tíma og komum erlendra ferðamanna er að fjölga til svæðisins og landsins. Lesa meira
 
Hornafjarðarós, endurbættur með varnargörðum (Mynd SMS)

Alþjóðleg ráðstefna um rannsóknir á náttúrufari hafs og strandar... - 10.05.2005 Maí

Dagana 5. til 8. júní 2005 verður haldin hér alþjóðleg ráðstefna á Höfn (Second International Coastal Symposium) sem fjallar um rannsóknir á náttúrufari hafs og strandar, öryggi sjófarenda og mannvirki á ströndinni. Undirbúningur fyrir ráðstefnuna er í fullum gangi. Svipuð ráðstefna var haldin hér árið 1994. Alls hafa borist 110 fyrirlestrar og greinar frá fræðimönnum í 27 löndum. Á ráðstefnunni verður megin áherslan lögð á hönnun og viðhald innsiglinga, efnisflutninga við strendur, brimvarnargarða og sjóvarnir, öldufar og öryggismál sjófarenda. Meðal þess efnis sem íslenskir fræðimenn munu leggja áherslu á eru hönnun og bygging bermugarða, landris vegna bráðnunar jökla og spár um áhrif vegna þess, rof við Jökulsá á Breiðamerkursandi og varnir við því, ásamt öryggismálum sjófarenda. Að ráðstefnunni standa Sveitarfélagið Hornafjörður, Siglingastofnun, Háskóli Íslands og Samgönguráðuneytið. Lesa meira
 
Birna Aðalsteins að skoða grænmetið hjá Finndísi í Dilksnesi

Niðurstaða aðalfundar að halda áfram með markaðstorg - 09.05.2005 Maí

Aðalfundur Markaðstorgs Hornafjarðar var haldin að Hótel Höfn fimmtudaginn 7.apríl. Á fundinum komu fram ýmsar tölulegar upplýsingar um reksturinn svo sem yfirlit um fjölda markaða og þátttakendur frá upphafi markaðhalds. Á árinu 2003 voru haldnir 6 markaðir og þátttakendur voru um 120. Á árinu 2004 voru haldnir 10 markaðir með 170 þátttakendum. Það var niðurstaða aðalfundarins að halda áfram með þetta skemmtilega verkefni og bjóða upp á árstíðabundna markaði. Næstur er vormarkaður sem haldin verður núna á laugardaginn 14. maí, tvöfaldur sumar-Humarhátíðarmarkaður föstudaginn 1. júlí og laugardaginn 2. júlí. Uppskeru og haustmarkað í október, jólamarkaði í desember og vetrarmarkað í mars. Lesa meira
 
Gudny_a_Gljufra

Námskeið í viðburðastjórnun í Nýheimum - 09.05.2005 Maí

Miðvikudaginn 11.maí verður í Nýheimum námskeið í viðburðastjórnun. Kennari á námskeiðinu er Guðný Dóra Gestsdóttir ferðamálafræðingur. Á námskeiðinu verður farið í skipulagningu margskonar viðburða sem haldnir kunna að verða í sveitarfélaginu t.d. menningar-, bæjar-, íþrótta-, skemmti-, eða afmælishátíðir svo eitt hvað sé nefnt. Það eru mikil tækifæri fólgin í því að setja upp viðburði, segir Guðný og það er ákveðin aðferð í markaðssetningu og mikilvægt að vel sé staðið að öllum undirbúningi, skipulagningu og markaðssetningu. Það eru fjölmargir í byggðarlaginu sem njóta hagsmuna í tengslum við svona viðburði og það eru alþekkt þessi margfeldis áhrif t.d. nýtist mörgum ef margir gestir koma á staðinn á viðburðinn. Það er einnig mjög góð kynning á bænum ef vel tekst til og vel er haldið á málum í allri skipulagningu. Mikilvægt er að temja sér fagleg vinnubrögð sem um leið létta allan undirbúning og þeim tíma sem fólk ver í undirbúning tímanlega er gríðarlega vel varið. Það skiptir miklu máli að þeir sem eru að skipuleggja viðburð gefi sér þann tíma sem þarf í undirbúninginn og að kortleggja alla þá þætti sem skipta máli. Lesa meira
 
Smyrlabjörg

Sumarið lítur mjög vel út - 06.05.2005 Maí

Ferðaþjónustan er byrjuð á fullu á Smyrlabjörgum í Suðursveit. Þetta er búið að vera óvenju mikið undanfarið og má heita fullbókað fyrir maí sem er mun fyrr en áður segir Laufey Helgadóttir hótelstjóri. Sumarið lítur mjög vel út, miklu betur en áður fyrir ferðaþjónustuna þar sem hún lengist um hátt í mánuð í báða enda því það er nánast allt fullt út september og gæti náð fram í október. Meistarakokkurinn Kristján Guðnason verður hjá okkur í sumar en eins og flestir sem hann þekkja vita þá er hann er snillingur þegar kemur að matseld. Um helgina verður glæsilegt kaffihlaðborð á Smyrlabjörgum með allskonar gómsætum hnallþórum og ýmsu öðru góðgæti, og það er enginn svikinn af tertunum hennar Laufeyjar. Lesa meira
 
Myndasafn 563

Hjóladagur fjölskyldunnar á Höfn - 06.05.2005 Maí

Slysavarnakonurnar í Framtíðinni verða með sinn árlega hjóladag á morgun, laugardaginn 7. maí kl.13.00. Byrjað verður á að allir mæta út við íþróttahús og þar fer fram hjóla og hjálmaskoðun. Slysavarnakonurnar sjá um hjálmaskoðunina en lögreglan skoðar hjólin, björgunarsveitastrákarnir sjá um hjólaþrautir og verða með björgunarsveitarbílinn á staðnum. Þegar skoðun á hjólum og hjálmum er lokið verður hjólað af stað og verður björgunarsveitarbíllinn með í ferðinni. Hjólaleiðin fyrir yngstu þátttakendurna er eftir Víkurbrautinni út að Slysavarnahúsi en eldri hjólreiðamenn fara lengri ferð og verður látið ráðast af veðri hvert hjólað verður og lögreglan verður með í hjólaferðinni. Allir fá einhvern glaðning og hressingu að hjólaferð lokinni. Lesa meira
 
Kvennakór Hornafjarðar

Kvennakórinn á Landsmóti íslenskra kvennakóra - 06.05.2005 Kvennakór Hornafjarðar

Föstudaginn 29. apríl s.l. hófst í Hafnarfirði 6. Landsmót íslenskra kvennakóra og voru mótshaldarar Kvennakór Hafnarfjarðar. Á mótið voru mættar um 400 söngelskar konur úr 15 kórum víðs vegar að af landinu, og þar voru að sjálfsögðu konur úr Kvennakór Hornafjarðar ásamt Sigjóni Bjarnasyni stjórnanda og Jónínu Einarsdóttur undirleikara. Dagskrá mótsins var þétt en hún hófst á föstudagskvöldinu með mótsetningu og síðan var haldið í óvissuferð. Snemma á laugardagsmorgni hófst svo af fullum krafti hópavinna, en kórunum var skipt upp í 4 hópa sem æfðu Jónasarlög, Íslenska söngdansa, Björgvinslög og kirkjuleg verk. Kl. 16:00 á laugardag voru haldnir tónleikar í Víðistaðakirkju þar sem hver kór flutti tvö lög. Lesa meira
 
Hreinsunardagur Hafnarskóla 2005

Hreinsunardagur Hafnarskóla 2005 - 06.05.2005 Maí

Víða um Höfn mátti sjá krakkana úr Hafnarskóla ásamt kennurum sínum týna rusl um bæinn því í dag er hinn árlegi hreinsunardagur skólans. Þá taka nemendur og kennarar höndum saman og hreinsa bæinn og er afraksturinn alltaf margir pokar fullir af rusli, sem hefur safnast saman á víðavangi yfir veturinn. Ekki létu krakkarnir það á sig fá þó svo að það væri smá vindgustur. Krakkarnir eru á ferðinni fram undir hádegi, en þá er boðið til grillveislu við Hafnarskóla og þar mætir foreldrafélagið og aðstoðar við grillið. Lesa meira
 
Grænlendingar

ISLANDIMUT ANGALNEQ - Skólaheimsókn frá Grænlandi - 04.05.2005 Maí

Á föstudaginn í síðustu viku kom 30 manna hópur grunnskólabarna, (9. bekkur) ásamt kennurum frá Grænlandi í heimsókn hingað til Íslands. Heimsóknin er í boði bæjarstjórnar Hornafjarðar, en Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla hitti hópinn í Reykjavík og fræddi hann um það sem fyrir augu bar á leiðinni þaðan hingað austur. Hér skal koma fram að heimsbær barnanna, Sisimut, er einmitt vinabær Hafnar. Fyrst var farið til Reykjavíkur þar sem nýuppgert Þjóðminjasafnið var skoðað. Síðan var farið sem leið liggur að Þingvöllum og yfir að Laugarvatni. Þá áfram austur að Geysi og svo að Gullfossi. Sennilega voru þetta mikil undur að sjá fyrir gestina því fossar eru sjaldséðir á Grænlandi og hverir finnast alls ekki. Eftir stans var svo enn haldið áfram í austurátt allt að Hofi í Öræfum og þar var gist. Á mánudaginn voru svo allir hér á Höfn og fyrir hádegi kom hópurinn til að heilsa upp á jafnaldra sína í Heppuskóla. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn

Hreinsunardagar á Höfn og í Nesjum - 04.05.2005 Maí

Næsta laugardag er árlegur hreinsunardagur á Höfn og í Nesjum og eru allir hvattir til þess að taka til í görðum sínum og næsta nágrenni. Hreinsunardeild bæjarins mun síðan fara af stað eftir hádegi og safna saman garðaúrgangi sem skilin hefur verið eftir við gangstéttarbrún. Víða um bæinn má sjá að menn eru þegar byrjaðir að ná í gróðurmold til að setja í beðin. Eins og undanfarin ár þá er hægt er að nálgast gróðurmold norðan við gatnamót Fákaleiru og Álaleiru. Samkvæmt upplýsingum veðurstofunnar þá er búist við góðu og björt veðri í Sveitarfélaginu næstu helgi og aldrei að vita nema við fáum tveggja stafa hitatölu. Lesa meira
 
Notið veðurblíðunnar á milli æfinga

Karlakórinn í tónleikaferð til Siglufjarðar - 04.05.2005 Maí

Karlakórinn Jökull lagði á stað ásamt fylgdarliði sínu um hádegi sl.föstudag í tónleikaferð til Siglufjarðar og voru komnir á ákvörðunarstaðinn nákvæmlega kl. 24 um kvöldið. Þar var tekið þvílíkt vel á móti okkur af Karlakór Siglufjarðar og þeir byrjuðu á að bjóða okkur kaffiveitingar í kirkjunni segir Borgþór Freysteinsson. Þegar búið var að hressa mannskapinn með góðum veitingum var haldið á hótel Hvanneyri þar sem við gistum. Á laugardagsmorgun mættum við eldhressir í morgunverðinn kl..9 og um kl.11.30 bauð Karlakór Siglufjarðar okkur í skoðunarferð í síldarsafnið sem þeir sýndu okkur og fræddu um þetta skemmtilega og mikla safn og síðan buðu þeir uppá léttan hádegisverð. Þegar búið var að gera matnum skil tóku kórarnir lagið saman. Lesa meira
 
Álver í Reyðarfirði

Alcoa með kynningarfund á Hótel Höfn - 03.05.2005 Maí

Áformað er að bjóða út margvíslega stoðþjónustu í tengslum við rekstur álvers Alcoa Fjarðaáls í Fjarðabyggð og munu þannig skapast fjölmörg viðskiptatækifæri fyrir iðn- og þjónustufyrirtæki. Stefnt er að því að fyrstu útboðin fari fram fyrir lok þessa árs en gera má ráð fyrir að viðskiptin muni hlaupa á milljörðum árlega eftir að starfsemi álversins kemst á fullan gang. Markmið Alcoa Fjarðaáls með útboðum á stoðþjónustu er m.a. að stuðla að frekari uppbyggingu atvinnurekstrar á Austurlandi og þar með að langvarandi vexti og viðgangi svæðisins í heild. Alls er um að ræða yfir 50 aðgreind viðskiptatækifæri sem spanna mjög vítt svið iðnaðar, tækni- og sérfræðiþjónustu af margvíslegu tagi. Sem dæmi má nefna að áformað er að bjóða út hafnarstarfsemi, birgðahald, tölvu- og verkfræðiþjónustu, þjónustu á sviði umhverfismála og margvíslegt viðhald og viðgerðir. Lesa meira
 
Þrekmeistarinn 2005

Skvetturnar í 2 sæti af 18 á bikarmeistaramóti Þrekmeistarans - 02.05.2005 Maí

Eftir langt og strangt æfingatímabil uppskáru skvetturnar 2 sæti af 18 á bikarmeistaramóti Þrekmeistarans sem fram fór á Akureyri um helgina. Keppnin er í rauninni boðkeppni þar sem hver liðsmaður keppir í tveimur greinum og þarf að ná sem bestum tíma. Í hverju liði eru 5 keppendur og í keppninni í ár voru keppendur frá aldrinum 16-45 ára. Greinarnar sem keppt er í eru :Hjól, róður, niðurtog, fótalyftur, armbeygjur, uppstig, uppsetur, axlarpressur, hlaup og bekkpressa. Keppnin hefur sjaldan verið eins sterk og í ár voru öll met sleginn og metþátttaka. Hornfirðingurinn Pálmar Hreinsson bætti Íslandsmetið sem hann átti um rúmlega mínútu. Í fyrsta sæti í kvennaflokki voru Rauðu djöflarnir 1 frá Vestmannaeyjum með tímann 15:10 og Skvetturnar í öðru með tímann 15:17. Það sýnir best hve keppnin var hörð í ár að sigurlið síðustu þriggja ára lenti í þriðja sæti. Lesa meira
 
Kassaklifur

Örn Þór Íslandsmeistari í kassaklifri - 02.05.2005 Maí

Íslandsmeistaramót í kassaklifri fór fram í KA heimilinu á Akureyri á laugardaginn. Keppt var í flokki drengja og stúlkna 13-15 ára og 16-18 ára. Sigurvegari mótsins og Íslandsmeistari varð Örn Þór Björnsson á Höfn sem náði 30 kössum í aldursflokki 16-18 ára, næsti var með 26 kassa. Þetta er í annað sinn sem keppt er í þessari íþróttagrein en fyrsta keppni Arnar Þórs því vegna veikinda gat hann ekki tekið þátt í keppninni í fyrra. Íslandsmeistarinn fékk medalíu, bækur og flíspeysu merkta ,, nýjasta jaðarsportið á klakanum’’. Aðstöðu til að iðka þessa nýju keppnisgrein hafa krakkarnir í íþróttahúsinu og trúlega verður þessi frábæri árangur Arnar Þórs til að vekja meiri áhuga á kassaklifrinu. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica