Ríki Vatnajökuls - Apríl
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Endurnýjun og breytingar á planinu við Olís
      <description>Framkvæmdir við endurnýjun og breytingar á planinu við Olís á Höfn eru hafnar. Byrjað er á jarðvegsskiptingu á þvottaplaninu og verður allt planið fullklárað áður en aðal ferðatíminn byrjar. Haukur Sveinbjörnsson á Olís segir að ekki sé víst að tími vinnist til að setja þakið yfir eldsneytisdælurnar núna áður en sumarumferðin byrjar og þá verður þeim framkvæmdum frestað til haustsins. Góð aðstaða fyrir losun og þrif húsbíla- og hjólhýsa. Verktakar á staðnum sjá um alla vinnu við planið. Ellingsen dagar verða á Olís um helgina og í dag laugardag verður þar til viðtals sérfróður ráðgjafi um notkun á gasi í sumarbústöðum, húsbílum og öðrum stöðum þar sem notuð eru gastæki.</description>
Norðlenska matborðið leigir sláturhúsið á Höfn og rekstur þess
      <description>Aðalfundur Sláturfélagsins Búa svf. var haldinn á Hótel Höfn s.l. miðvikudag. Fram kom á fundinum að á liðnu ári urðu miklar breytingar á starfsemi félagsins.  Skömmu fyrir upphaf sláturtíðar s.l. haust varð ljóst að Byggðastofnun mundi ekki veita bakábyrgð vegna afurðalána sauðfjárafurða eins og verið hafði frá 2001 og í kjölfar þess hafnaði Landsbanki Íslands hf. að veita félaginu afurðalán.   Samið var um það við Norðlenska matborðið ehf. á Akureyri, að þeir keyptu afurðir beint af bændum við innlegg í sláturtíð, en Sláturfélagið Búi svf. annaðist framkvæmd slátrunarinnar samkvæmt sérstökum verktökusamningi. Nú hafa mál þróast á þann veg að Sláturfélagið Búi  svf. hefur keypt sláturhúsið á Höfn, en jafnframt hefur verið gerður langtíma leigusamningur við Norðlenska matborðið ehf. um leigu hússins og rekstur þess.</description>
Malbikunar og gatnaframkvæmdir á Höfn.
      <description>Malbikunarframkvæmdir hafa staðið yfir á Höfn undanfarið. Búið er að leggja malbik á planið á útsýnishólnum í Óslandi sem oftast er kallaður Gónhóll en þaðan er besta yfirsýnin yfir innsiglinguna um ósinn. Það var góð framkvæmd og mikil þörf að malbika þetta plan sem er mikið notað alla daga allt árið auk þess sem þetta er vinsæll viðkomustaður ferðahópa á sumrin. Lokið er malbikun á svæðinu við Kaffihornið og Hárgreiðslustofu Ingibjargar einnig hefur verið unnið við malbikun á götum í bænum. Hafnarbrautin hefur fengið breytt útlit, komnar eru þar all vígalegar grjóteyjur sem ætlað er það hlutverk bæði að draga úr hraðakstri um Hafnarbrautina og fegra umhverfið.</description>
Gengið í Efstafellsgil um helgina.
      <description>Ferðafélagið stendur fyrir fjölskylduferð í Efstafellsgil um helgina. Efstafellsgil er innan  og vestan við Hoffell og er farið á bílum inn að jökli þar sem gengið er inn gilið. Þetta þykir mjög falleg leið og auðveld ganga fyrir fólk á öllum aldri. Valur Sveinsson formaður ferðanefndar segir að grillið verði með í ferðinni og verður grillað þegar komið er úr gönguferðinni. Gangan tekur  2-3 tíma. 
|nl|Enn er beðið færis með göngu á Hvannadalshnúk og tilkynningar frá Einari Sigurðssyni fjallaleiðsögumammi í Hofsnesi, sem fer með hópinn, um að nú sé lag að leggja af stað. Fjórtán manns hafa skráð sig í jökulgönguna..</description>
Leikskólinn á Lönguhólum í samstarfi við sænskan leikskóla.
      <description>Leikskólinn Lönguhólar byrjaði í haust í samstarfsverkefni innan menntaáætlunar Evrópusambandsins, Sókrates. Nefnist sá liður Comanius og er fyrir leik- grunn- og framhaldsskólastigið. Þessi áætlun er byggð upp til að efla samstarf og þekkingu milli skóla innan Evrópusambandsins. Lönguhólar eru í skólaþróunarverkefni sem nefnist “Learning by doing in Nature in four European Countries”, og er megin efni verkefnisins að skoða mismunandi aðstæður hvað varðar nánasta umhverfi skólanna og náttúru, hvernig skólarnir nýta sér þessar aðstæður, hvað er sameiginlegt með skólunum hvað þetta varðar og hvað öðruvísi. Hvað getum við lært af hvert öðru og hvernig er unnið með nánasta umhverfið og náttúruna með börnunum. Um leið skoðum við gæði skólanna og tengjum við þá stefnu að leifa börnunum að prófa/gera/upplifa/læra með því að gera, “Learning by doing”.</description>
Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði
      <description>Samfylkingin á Hornafirði hélt aðalfund sinn mán. 25. apríl. Árni Rúnar Þorvaldsson var kjörinn formaður og í stjórn voru kjörin Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Ingvar Þórðarson, Guðrún Ingimundardóttir og Torfi Friðfinnsson. Eiríkur Sigurðsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. 
|nl|Gestir á fundinum voru Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Önundur Björnsson varaþingmaður Samfylkingarinnar og Kristinn Bárðason formaður kjördæmisráðs. 
|nl|Á fundinum urðu mjög gagnlegar umræður um mörg mál. Aðallega var þó rætt um mál er snúa að kjördæminu, formannskosningar í Samfylkingunni og einnig kom fram eindreginn vilji fundarmanna til þess að Samfylkingin á Hornafirði stæði að sérframboði hér á Hornafirði í næstu sveitarstjórnakosningum.</description>
      <alt>Aðalfundur Samfylkingarinnar</alt>
Aðalskipulag sveitarfélagsins í endurskoðun.
      <description>Nú stendur yfir endurskoðun á aðalskipulagi í Sveitarfélaginu Hornafirði og er stefnt að því að tillögur þess verði tilbúnar nú í byrjun sumars. Íbúum sveitarfélagsins  hefur borist bréf þar sem þeir eru vinsamlega beðnir að koma á framfæri við starfsmenn tækni-og umhverfissvið hafi þeir hug á einhverjum framkvæmdum. Þetta gætu verið framkvæmdir í sambandi við skógrækt, frístundabyggð eða aðra breyting á landnotkun í dreifbýli út frá núgildandi skipulagi. Einnig eru íbúar í þéttbýli hvattir til að koma sínum hugmyndum á framfæri.</description>
      <alt>Höfn</alt>
Hjólað í vinnuna-keppnin hefst 2.maí.
      <description>Þann 2.maí hefst hvatningaverkefnið “Hjólað í vinnuna” sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir. Þetta er fyrirtækja – og stofnana keppni og er markmiðið með því að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, hagkvæmnum og umhverfisvænum samgöngumáta. Keppnin er byggð í kringum heimasíðu verkefnisins sem er vistu á isisport.is. Keppt er í 6 flokkum um flesta daga og flesta km, hlutfallslega miðað við starfsmannafjölda í fyrirtækjum. Þannig er aðalatriðið að fá sem flesta með, sem oftast. 
|nl|Í fyrra stóðu Hornfirðingar sig mjög vel í þessari keppni og vill æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar  hvetja alla til að taka þátt í verkefninu sem hefst eins og fyrr segir  mánudaginn 2.maí og stendur til 13.maí. Fyrirtæki og eða stofnanir finna einhvern úr sínum röðum til að halda utan um verkefnið og sjá um skráningu inn á vefnum isisport.is þar sem keppnin er vistuð.</description>
Tónleikar Karlakórsins frábærir
      <description>Vortónleikar Karlakórsins Jökuls um helgina tókust frábærlega vel og voru  alls 194 tónleikagestir bæði kvöldin. Þetta er besta aðsókn ef frá eru taldir afmælistónleikar kórsins, segir Borgþór Freysteinsson,  og undirtektir voru svo góðar að tónleikarnir á laugardagskvöldinu voru meira en hálftíma lengri en til stóð  því alltaf var beðið um meiri söng.
|nl|Einsöngvari með kórnum var Ólafur Kjartan Sigurðsson baritón  sem fór á kostum og töfraði áheyrendur með sinni stórkostlegu rödd, skemmtilegri framkomu og léttu gríni sem vakti mikinn hlátur. Borgþór segir að Ólafi hafi þótt gott að syngja fyrir Hornfirðinga og hefði mikinn áhuga á að koma hingað aftur og vera þá með meiri dagskrá. Að venju var söngur karlanna frábær og lagavalið skemmtilegt.</description>
      <alt>Karlakórinn Jökull</alt>
Tóku þátt í sundmóti á Djúpavogi
      <description>Á sumardaginn fyrsta héldu 13 börn, ásamt nokkrum foreldrum og Ásdísi Ögmundsdóttur aðstoðarsundþjálfara  austur á Djúpavog þar sem Ungmennafélagið Neisti stóð fyrir sundmóti og bauð til sín keppendum frá Hornafirði.  Hornfirsku börnin  stóðu sig öll mjög vel, allir fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna og fjórir komust á verðlaunapall. Þetta er í annað  sinn sem Neisti  bíður Hornfirðingum þátttöku í sundmóti. Erna Einarsdóttir foreldri í hópnum sagði að ferðin hefði í alla staði verið mjög góð og krakkarnir hefðu notið þess að fara í flottu sundlaugina þeirra á Djúpavogi og hún var ekki frá því að nokkurrar öfundar hafi gætt  yfir þessari skemmtilegu aðstöðu sem þar er komin og heimamenn  meiga vera hreiknir af.</description>
Norðurljósablúshátíð 2006
      <description>Kynningarfundur Hornfirska skemmtifélagsins og Ferðaþjónustu Hornafjarðar var haldinn í Nýheimum 7.apríl sl.
|nl|Kristín G. Gestsdóttir formaður Skemmtifélagsins sagði frá starfsemi félagsins og stiklaði á stóru í sögu þess. félagið var stofnað 2003 og hefur sett upp þrjár sýningar á Hótel Höfn; Slappaðu af, Með allt á hreinu og Diskó en tvær þær síðarnefndu voru einnig sýndar á veitingahúsinu Broadway í Reykjavík. Markmið félagsins  er að vinna að uppfærslum sem gera kröfur til flytjenda og starfsfólks sem eflir það í listgrein sinni og alls komu 54 einstaklingar að þessum þrem uppfærslum. 
|nl|Ari Þorsteinsson lýsti hugtakinu Crestive indudtry eða skapandi iðnaði og sagði það lýsa starfsemi skemmtifélagsins. Á fundinum sýndi hann glærur frá Ágústi Einarssyni prófessor í viðskiptadeild Háskóla Íslands þar sem sýnt er fram á að skemmtanaiðnaðurinn er þjóðhagslega hagkvæmur. . Ari fór í gegn um hugmyndafræðina á bak við klasa og útskýrði hvernig skemmtifélagið smellpassaði inn í Ferðaþjónustuklasa Hornafjarðar.  Ari sagði frá því að í vor verður haldin alþjóðleg ráðstefna á Höfn.  Hann lagði til að Skemmtifélagið tæki að sér að búa til og flytja skemmtiatriði fyrir rástefnugesti og að það yrði nokkurskonar þróunarverkefni fyrir Skemmtifélagið.</description>
Heimsókn í Einarslund
      <description>Laugardaginn 23.apríl fóru krakkar úr 5 bekk ásamt foreldrum í fuglaskoðunarferð.  Lagt var á stað  frá tjaldstæðinu með Birni Gísla Arnarsyni leiðsögumanni  og var ferðinni heitið í Einarslund. Skoðaðir voru þeir fuglar sem á leið hópsins urðu og Björn fræddi krakkana um þá. Í Einarslundi tók Brynjúlfur Brynjólfsson á móti hópnum og þá var komið að því að fá að fylgjast með hvernig fuglamerkingar færu fram. Björn og Brynjúlfur útskýrðu fyrir hópnum starfsemi þeirra við merkingar fugla, sem gert hefur verið í mörg ár, en er nú á vegum nýju Fuglaathugunarstöðvarinnar. Bæði börn og foreldrar fylgdust með af athygli hvernig fuglarnir voru veiddir í fuglanet og hringur settur á annan fót þeirra. Mest var af skógarþröstum í netunum og einn hrossagaukur sem að sjálfsögðu fékk hring. Krakkarnir lofuðu að  láta vita í Fuglaathugunarstöðina ef  þau finndu veikan eða dauðan fugl með merki. Þetta er fyrsti skólahópurinn sem þeir félagar fá í heimsókn síðan stöðin var opnuð 24.mars sl. Á heimleiðinni kom hópurinn við í byggðasafninu þar sem Björn sýndi þeim krabba sem hann hafði veitt í Berufirði.</description>
Heimsókn frá Sisimut á Grænlandi 1.maí
      <description>Fyrsta maí koma þrjátíu Grænlendingar í heimsókn til Hornafjarðar. Þetta eru tuttugu og sjö nemendur úr 9. bekk grunnskóla í Sisimiut á Grænlandi ásamt þrem kennurum.Þau munu dvelja hér í eina viku, heimsækja skólann hér, skoða sig um og gera eitt og annað skemmtilegt. Heppuskóla hefur verið falið að skipuleggja þessa heimsókn í samráði við Stefán Ólafsson . Guðmundur Ingi skólastjóri Heppuskóla fer til Reykjavíkur að sækja hópinn og verður þeirra leiðsögumaður á leiðinni austur. Komið verður við á Þingvöllum,Laugarvatni, farið að Gullfossi og Geysi og gist eina nótt á  Hofgarði í Öræfum. Daginn eftir verður farið í Skaftafell og þjóðgarðurinn skoðaður undir leiðsögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar og á leiðinni til Hafnar verður staldrað við á nokkrum stöðum. Grænlensku gestirnir  munu búa í heimavistinni í Nesjaskóla og borða á Kaffihorninu í boði Sveitarfélagsins Hornafjarðar.</description>
Firmakeppni við Stekkhól á laugardag.
      <description>Hestamannafélagið Hornfirðingur efnir til firmakeppni við Stekkhól á morgun,laugardag og hefst hún kl.14.00. Firmakeppnin er eina fjáröflunin sem félagið stendur fyrir og er leitað til allra félaga og stofnana á staðnum um styrk. Knapar draga síðan um hvaða félag eða stofnun þeir keppa fyrir og hefur knapinn frjálst val um hvað hann sýnir. Sigfús Þorsteinsson hestamaður segir að tölt sé vinsælasta valgreinin en svo er heilmikil fjölbreytni í þessu og börn og unglingar velja þá sýningu sem þau vilja og ráða best við.  Keppt er í flokkum karla , kvenna, barna, unglinga og hugsanlega verður höfðingjaflokkur  þar sem knapar yfir 50-60 ára aldrinum keppa.
|nl|Námskeið með  kennslu í íþróttahestamennsku verður haldið dagana 5.-6. maí, kennari verður Hulda Gústafsdóttir. Ýmislegt fleira er á döfinni hjá Hornfirðingi  því stefnt er á að halda hér opið íþróttamót 24.maí sem er fyrir allt austurland og um 20. júní verður félagsmót hestamanna við Stekkhól.</description>
Þing USÚ haldið í Nýheimum
      <description>72. Þing USÚ var haldið í Nýheimum miðvikudaginn 20.apríl. Á dagskrá voru venjuleg þingstörf og bar fátt til tíðinda. Góð mæting var á þingið að þessu og sátu 35 gestir þingið. Það er stjórninni mikið gleðiefni að starfi þess skuli vera sýndur slíkur áhugi. Í stjórn USÚ voru kjörin Ragnhildur Einarsdóttir formaður, Kjartan Hreinsson og ný inn í stjórn kemur Jóhanna Kristjánsdóttir. Guðrún Þorsteinsdóttir gengur úr stjórn.  
Í skýrslu stjórnar kom m.a. fram að á síðasta ári vann stjórnin að umsókn til þess að fá að halda unglingalandsmót UMFÍ árið 2006. Þetta mót er haldið ár hvert um verslunarmannahelgi og er fyrir ungmenni á aldrinum 11-18 ára. Um 10.000 gestir hafa verið að sækja þessi mót og töldum við í stjórninni og teljum reyndar enn að svona viðburður gæti orðið lyftistöng fyrir íþróttalíf í sýslunni. Í stuttu máli þá fengum við ekki mótið 2006 en erum hvött til að sækja um aftur og reyna þá frekar að halda það 2007. Annað stórt verkefni sem stjórnin hefur unnið að er að opna skrifstofu fyrir sambandið.</description>
Björgunarskipið Ingibjörg vígt.
      <description>Björgunarskip Hornfirðinga var vígt í gær sumardaginn fyrsta við hátíðlega athöfn  Friðþór Harðarson formaður björgunarbátasjóðs Hornafjarðar bauð gesti velkomna  og byrjaði á að þakka fyrirtækjum og einstaklingum fyrir framlög til handa bátasjóðnum. Því næst kom Vignir Júlíusson og gekk skipið, en það er hjátrú hjá Bretum að áður en skipum er gefið nafn skuli ganga skipið, fyrst rangsælis og síðan réttsælis. Þegar Vignir hafði,,gengið skipið’’vígði sr.Fjölnir Ásbjörnsson sóknarprestur björgunarskipið og bað því blessunar og velfarnaðar og þá var komið að Guðbjörgu Sigurðardóttur að gefa skipinu nafnið Ingibjörg sem er  nafn móður hennar Ingibjörgu Guðmundsdóttur sem í fjölda ára starfaði að björgunar og slysavarnarmálum á Höfn, hún var m.a. formaður slysavarnadeildarinnar Framtíðar frá 21. febrúar 1968 og allt til að hún lést 27. febrúar 1985.
|nl|Guðbjörg hefur eins og móðir hennar unnið mikið að slysavarnarmálum hér á staðnum. Árið 1985 var stofnaður minningarsjóður Ingibjargar Guðmundsdóttur  til styrktar slysavarnadeildunum á Höfn og við athöfnina í gær var tilkynnt að sjóðurinn gæfi  siglingatölvu í björgunarskipið Ingibjörgu.</description>
Krían er komin
      <description>Fyrsta kría sumarsins sást á Höfn rétt fyrir kl. sex sumardaginn fyrsta 21.apríl og sá sem átti kríu-fundinn að þessu sinni var Þórir Snorrason. sem sá kríu á flugi yfir höfninni. Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöðinni segir að þrjár kríur hafi sést á Breiðdalsvík í gær og svo fari þeim fljótt fjölgandi á næstu 2-3 dögum. Björn hefur séð lítilsháttar af flækingsfuglum í dag s.s. barrfinkur, landsvölur og gransöngvara.
|nl|Ein bleshæna er lengi búin að halda sig  hér innst í höfninni og lætur sér fátt um finnast þó fólk veiti henni talsverða athygli og mikið sé tekið af myndum af henni.</description>
Viðvörunarljós við brúna á Jökulsá á Breiðamerkursandi
      <description>Vegagerðin hefur sett viðvörunarljós við brúna á Jökulsá á Breiðamerkursandi.
|nl|Ljósin virka þannig að þegar bíll nálgast brúna fer hann yfir skynjara sem kveikir á gulu blikkandi aðvörunarljósi sem gefur til kynna að bíll sé að koma að brúnni  á leið yfir.
|nl|Aðstæður eru þannig beggja megin brúarinnar að ekki sést til bíls sem væri að koma á móti inn á brúna nema þá allra stærstu og vonandi kemur þessi aðvörunarbúnaður í veg fyrir árekstra á brúnni í framtíðinni. Lögreglan segir að venjulega hafi orðið 3-4 árekstrar á brúnni á hverju ári,margir stórir árekstrar og oft mikið eignatjón en ekki alvarleg slys á fólki  og oft hafi legið við alvarlegum slysum þar.</description>
Vortónleikar Karlakórsins Jökuls
      <description>Á hverju vori fagnar Karlakórinn Jökull vorinu með tónleikum  á sumardaginn fyrsta. Tónleikarnir að þessu sinni verða í Hafnarkirkju  kl.20.00 á sumardaginn fyrsta og  verða svo endurteknir á föstudagskvöldið 22.apríl kl.20.00. Undirleikari er Guðlaug Hestnes, stjórnandi Jóhann Morávek og einsöngvari er Ólafur Kjartan Sigurðarson.
Aðgangseyrir er 1500 kr og frítt fyrir börn yngri en 14 ára.</description>
      <alt>Karlakórinn Jökull</alt>
Vígsla björgunarskipsins og kaffisala í Slysavarnahúsinu
      <description>Hin árlega Kaffisala Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar verðu í húsi Slysavarnafélagsins við Álaugareyjarveg  KL: 15.00. á morgun, sumardaginn fyrsta. Þetta er ein stærsta  fjáröflun slysavarnakvenna á ári hverju. Konur í Slysavarnadeildinni taka sig saman og baka myndarlegar og gómsætar hnallþórur fyrir þenna dag eins og þeim einum er lagið og þegar til þeirra er leitað. Í deildinni eru tæplega 90 konur, áhugasamar konur  á öllum aldri. Ný stjór var kosin á aðalfundi deildarinnar 3.aprí sl. og þær sem nú stija við stjórn eru; Þorbjörg Helgadóttir formaður, Guðrún Ósk Óskarsdóttir varaformaður,  Ragna Einarsdóttir ritari, Anna María Ríkharðsdóttir gjaldkeri, meðstjórnendur eru Ásta Halldóra Guðmundsdóttir og Eva Eiríksdóttir.
|nl|Félagskonum er skipt í nefndir  sem hver hefur sitt verkefni og sjá um s.s. viðburði sem upp koma þannig að t.d. eru það kaffinefndarkonur sem sjá um sumardaginn fyrsta.</description>
Fuglaathugunarstöðin og FAS í samstarf
      <description>Um síðustu helgi var skrifað undir samstarfssamning milli Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) um fuglaathuganir. Markmið samningsins er að efla náttúruskoðun við FAS, auka rannsóknir á fuglum og efla áhugann á þeim. Miðað er við að nemendur FAS vinni fuglaverkefni í öllum áföngum sem tengjast líffræði. Fuglaathugunarstöðin sér um skipulagningu og framkvæmd verkefnanna í samvinnu við líffræðikennara FAS. FAS greiðir samkvæmt reikningi Fuglaathugunarstöðinni fyrir vinnuframlag og annan kostnað sem hlýst af verkefnunum samkvæmt fyrirfram samþykktri verk- og kostnaðaráætlun. Líffræðikennari FAS og fulltrúi Fuglaathugunarstöðvarinnar skulu í apríl og nóvember ár hvert hittast og skipuleggja verkefnavinnu næstu annar. Hægt er að koma á öðrum samstarfsverkefnum sem aðilar eru sammála um og samræmast markmiðum samningsins.</description>
Búið að merkja 511 fugla í Einarslundi
      <description>Í dag var búið að merkja fimmhundruð og ellefu fugla í Einarslundi frá því merkingar hófust þar 24. mars á vegum Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands sem opnuð var á Höfn 14. mars sl. Þar voru merktir 502 skógarþrestir, hrossagaukar, músarindill, svartþröstur og hettusöngvari. Fuglarnir eru merktir með númeruðum fóthring úr áli. Fyrsta maríuerlan sást á Höfn í morgun og litlu seinna birtist steindepill. Margir bíða spenntir eftir að sjá fyrstu kríuna, sem væntanleg er á hverri stundu, og eru vissir um að með komu kríunnar sé vorið endanlega komið. Björn Arnarson segir að utan kríunnar  séu einungis spóinn og þórshaninn ókomnir en þeir eru alltaf síðastir farfuglanna og koma venjulega einhvern tíma í maí.</description>
Mjög góð frammistaða Sindrastúlkna í fimleikum
      <description>Laugardaginn 16.apríl var haldið Austurlandsmót í fimleikum í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum.  Frá Fimleikadeild Sindra fóru 29 keppendur sem stóðu sig allir með stakri prýði.  Í þessa ferð notuðum við nýja Sindrabílinn, en með tilkomu hans mun ferðakostnaður hjá deildinni lækka.  Heim komum við svo á laugardagskvöldið með slatta af verðlaunapeningum í farteskinu, ásamt Austurlandsmeistaratign í ýmsum flokkum.  Eins og áður hefur verið greint frá í fréttum frá Fimleikadeildinni er keppt í ýmsum þrepum og aldurshópum. 
|nl|</description>
Ný aðferð við útrýmingu á lúpínu í Skaftafelli
      <description>Upplýsingamiðstöðin í Skaftafelli verður opnuð 2. maí og verslunin í byrjun júní. Fyrirkomulag á þjónustu verður svipað og sl. sumar. Núna er verið að lagfæra og endurbæta skrifstofuaðstöðuna í þjónustumiðstöðinni og starfsemi í þjóðgarðinum að komast á stað. Sjálfboðaliðar eru farnir að mæta til vinnu og er mikil ásókn í sjálfboðavinnuna og segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður að sl. sumar hafi meira en 50% af allri sjálfboðavinnu sem unnin var hér á  landi verið unnið í Skaftafelli. Helstu verkefni eru gerð göngustíga og útrýming á lúpínunni sem gert hefur sig heimakomna í þjóðgarðinum. Hvað lúpínuna varðar  þá ætlar Ragnar að reyna nýja aðferð við útrýmingu hennar sem er einfaldlega þannig, að fá kindur á svæðið og beita þeim á lúpínuna. Ragnar hefur samið við bónda í Öræfum um að fá nokkrar kindur sem verða hafðar á lokuðu svæði  þar sem lúpínan hefur breitt úr sér. Þessi aðferð hefur borið góðan árangur í Svínafelli og er hún notuð á norðurlöndum þar sem bæði kindur og íslenskir hestar er beitt bæði í lúpínu og einnig sinu.</description>
Leikendum Súperstar fagnað mikið og lengi
      <description>Rokksöngleikurinn Súperstar var frumsýndur í Mánagarði sl. laugardagskvöld fyrir troðfullu húsi. Sýningin tókst í alla staði frábærlega vel  og var leikendum  fagnað mikið og lengi einnig leikstjóranum Gunnari Sigurðssyni og öðrum sem að sýningunni stóðu. Uppsetning á Súperstar er  á vegum Leikfélags Hornafjarðar í samvinnu við FAS og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Leikendur eru nemendur FAS og með hlutverk Súperstar fer Ingi Steinn Þorsteinsson, Maríu leikur Sara Eik Sigurgeirsdóttir, Nanna Halldóra Imsland  leikur Júdas, systkinin Þórður Ingvarsson og Ingibjörg eru Pílatus og Heródes. Ágúst Elvarsson er Símon lærisveinn og með hlutverk prestanna fara Elvar Bragi Kristjónsson, Emil Örn Morávek og Sigfinnur Mar Þrúðmarsson. Með hlutverk lærisveinanna fara Aino Raiskila, Alexandra Ingvarsdóttir, Chiharu Kawai og Goran Basrak. Þessir ungu leikarar eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína á sýningu Superstar og vonandi fá Hornfirðingar að njóta þess að sjá þau sem oftast á  sviðinu í Mánagarði í framtíðinni.</description>
Mikilvægt að sýna framkvæmdaraðilum tillitsemi
      <description>Nú standa yfir malbikunarframkvæmdir á Höfn og munu þær standa yfir næstu daga. Þessar framkvæmdir hafa óumflýjanlega í för með sér óþægindi fyrir íbúana og geta valdið töfum á umferð og því er nauðsynlegt að sýna framkvæmdaraðilum tillitsemi og fara eftir fyrirmælum og merkingum. Í gær og dag er verið að malbika við Hafnarbrautina (við Kaffihornið). Næstu daga verður unnið við framkvæmdir í Hlíðartúni, Vesturbraut, Kirkjubraut,  Norðurbraut,  Vogabraut, Smárabraut og í Svalbarði. Einnig stendur til að malbika einn vinsælasta rúntstað innan Hafnar, það er út í Óslandi við minnismerkið þar sem vegfaraendur hafa útsýni yfir innsiglinguna um Hornafjarðarós.</description>
      <alt>Malbikunarframkvæmdir</alt>
Bíósýningar hefjast að nýju
      <alt>Son of the Mask</alt>
FAS og Heppuskóli í úrslit
      <description>Það var mikil spenna í Þrykkjunni í gær er fyrri umferð Þrykkjuþrauta fór fram. Þar keppti Framhaldsskólinn við Þrykkjuna og Hafnarskóli við Heppuskóla. Keppnin fór þannig að Framhaldsskólinn sigraði Þrykkjuna og Heppuskóli lagði Hafnarskóla. Til úrslita keppa því Framhaldsskólinn og Heppuskóli og fer keppnin fram á mánudagskvöldið kemur í Þrykkjunni. Spyrill í keppninni er Gunnlaugur Bragi Björnsson og háyfirdómari er Sindri Ragnarsson. Þrykkjuþrautir byggjast upp á hraða-vísbendinga -, og almennum spurningum. Þá er einnig keppt í tækjum s.s. billjard og körfu, líka er framkvæmdur látbragðsleikur. Þetta er góð æfing fyrir Spurningakeppni framhaldsskólanna. Núverandi handhafi farandverðlauna Þrykkjuþrauta er lið FAS.</description>
Vorhátíð FAS og Súperstar
      <description>Laugardaginn 16. apríl næstkomandi verður blásið til Vorhátíðar FAS á Hornafirði. Þar verður starfsemi Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) kynnt með pompi og prakt. Átak hefur verið gert í kynningarmálum FAS undanfarið, nýju kynningarriti um skólann verður dreift á Vorhátíðinni og opnaður verður nýr vefur FAS á slóðinni www.fas.is. Vorhátíð FAS hefst kl. 15:00 og þangað er öllum nemendum tíunda bekkjar á Hornafirði, Djúpavogi og Kirkjubæjarklaustri, sérstaklega boðið í heimsókn ásamt foreldrum þeirra. Allir íbúar á Hornafirði og nágrenni eru auk þess boðnir velkomnir á hátíðina. Þar kynna skólameistari FAS og kennarar, fjölbreytta starfsemi skólans, bæði hvað varðar kennslu og félagslíf. Auk þess verða flutt atriði úr söngleiknum Jesus Christ Superstar og boðið upp á léttar veitingar.</description>
Björgunarskipið komið til Hafnar
      <description>Björgunarskipið kom til Hafnar um kvöldmatarleitið í gær. Skipið er af gerðinni Arun 1108 frá Bretlandi. Það er 42 brúttólestir og búið tveim caterpillar 485 hestafla aðalvélum. Björn lóðs tók á móti skipinu rétt fyrir utan Ósinn og fylgdi því síðasta spölinn. Ferðin frá Hafnarfirði gekk mjög vel enda góður sjór og ganghraði skipsins um 15 sjómílur. Björgunarskipið verður staðsett á Hornafirði og er það liður í verkefni Landsbjargar og björgunarsveitanna að kaupa og staðsetja björgunarskip sem víðast á landinu til þess að stytta sem mest þann tíma sem fer í siglingar að hugsanlegum stað þar sem aðgerða björgunarskips er þörf.</description>
      <alt>Björgunarskip</alt>