Apríl
Framkvæmdir við Olís
Framkvæmdir við Olís
Framkvæmdir við endurnýjun og breytingar á planinu við Olís á Höfn
Mynd 1 af 2
1 2

30.04.2005 Apríl

Endurnýjun og breytingar á planinu við Olís

Framkvæmdir við endurnýjun og breytingar á planinu við Olís á Höfn eru hafnar. Byrjað er á jarðvegsskiptingu á þvottaplaninu og verður allt planið fullklárað áður en aðal ferðatíminn byrjar. Haukur Sveinbjörnsson á Olís segir að ekki sé víst að tími vinnist til að setja þakið yfir eldsneytisdælurnar núna áður en sumarumferðin byrjar og þá verður þeim framkvæmdum frestað til haustsins. Góð aðstaða fyrir losun og þrif húsbíla- og hjólhýsa. Verktakar á staðnum sjá um alla vinnu við planið. Ellingsen dagar verða á Olís um helgina og í dag laugardag verður þar til viðtals sérfróður ráðgjafi um notkun á gasi í sumarbústöðum, húsbílum og öðrum stöðum þar sem notuð eru gastæki.

Þar gefst fólki tækifæri til að fá góð ráð um val á gastækjum, uppsetningu á þeim og frágang. Ýmis tilboð verða og 25% afsláttur á öllum vörum frá Ellingsen nema tilboðsvörunum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica