Apríl
Í sláturhúsinu 19.september
Kind
Kind (úr myndasafni)

30.04.2005 Apríl

Norðlenska matborðið leigir sláturhúsið á Höfn og rekstur þess

Aðalfundur Sláturfélagsins Búa svf. var haldinn á Hótel Höfn s.l. miðvikudag. Fram kom á fundinum að á liðnu ári urðu miklar breytingar á starfsemi félagsins. Skömmu fyrir upphaf sláturtíðar s.l. haust varð ljóst að Byggðastofnun mundi ekki veita bakábyrgð vegna afurðalána sauðfjárafurða eins og verið hafði frá 2001 og í kjölfar þess hafnaði Landsbanki Íslands hf. að veita félaginu afurðalán. Samið var um það við Norðlenska matborðið ehf. á Akureyri, að þeir keyptu afurðir beint af bændum við innlegg í sláturtíð, en Sláturfélagið Búi svf. annaðist framkvæmd slátrunarinnar samkvæmt sérstökum verktökusamningi. Nú hafa mál þróast á þann veg að Sláturfélagið Búi svf. hefur keypt sláturhúsið á Höfn, en jafnframt hefur verið gerður langtíma leigusamningur við Norðlenska matborðið ehf. um leigu hússins og rekstur þess.

Á aðalfundinum kom fram að með þessu móti væri bændum tryggð örugg afsetning afurða sinna á samkeppnishæfu verði, en samtímis væri ljóst að rekstri hússins yrði haldið áfram með sama hætti og verið hefur undanfarin ár.
Við stjórnarkjör í félaginu gaf Olga Friðjónsdóttir á Brekku ekki kost á sér til endurkjörs.
Í þriggja manna aðalstjórn eru nú: Ragnar Jónsson, Akurnesi, formaður, Sigurbjörn J. Karlsson, Smyrlabjörgum, varaformaður og Laufey Guðmundsdóttir, Lækjarhúsum ritari.
Varastjórn skipa: Bjarni Sigjónsson, Fornustekkum, Guðjón Þorsteinsson, Svínafelli og Flosi Ingólfsson, Flugustöðum.

Norðlenska matborðið er eitt stærsta og öflugasta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði kjötvöru. Starfsstöðvar þess eru á Akureyri, Húsavík, í Reykjavík og á Höfn
Á Akureyri eru höfuðstöðvar fyrirtækisins, stórgripasláturhús og kjötvinnsla, á Húsavík eru sauðfjársláturhús og kjötvinnsla, í Reykjavík eru söluskrifstofa og kjötvinnsla (ferskvinnsla) og á Höfn er sauðfjársláturhús.
Við sendum kindakjötið til Húsavíkur en nautakjötið fer til Akureyrar einnig fer kindakjöt héðan til Færeyja segir Einar Karlsson sláturhússtjóri. Allt kindakjöt sem frá okkur fer er sagað í sjöpartasögun svokallaða og pakkað í öskjur og hér vinna fimm fastir starfsmenn allt árið, svo bætast margir við þær vikur sem sláturtíð stendur. Mun betur lítur út fyrir sölu kindakjöts hér innanlands á þessu ári en undanfarin ár. Einar vonar að fleira fé verði slátrað á Höfn en hefur verið þar sem sláturhúsum fækkar en næstu sláturhús við Höfn eru á Selfossi og á Húsavík. Stefnt er á að verða með sumarslátrun um eða fyrir verslunarhelgina í sumar, hvort það tekst fer eftir hvernig gengur að semja við bændur. Hægt er að kaupa sjöpartasagað kinda kjöt og nautakjöt í heilum eða hálfum skrokkum í sláturhúsinu hér allt árið.

Nú getum við neytendur auðveldlega fengið allar framleiðsluupplýsingar um kjötið sem við kaupum og næsta vetur getur Norðlenska upplýst frá hvaða bónda nautakjötið er , af hvaða grip, hvenær hann var fæddur, hvenær slátrað , nafn kjötiðnaðarmannsins sem úrbeinaði og svo hvað þarf að láta kjötið bíða lengi þar til það verður hæfilega meyrt. Í framtíðinni fær hvert dýr rafræna kennitölu við fæðingu og hún fylgir því alla leið hvort sem er í verslun eða á veitingahús.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica