Malbikunar og gatnaframkvæmdir á Höfn.
Malbikunarframkvæmdir hafa staðið yfir á Höfn undanfarið. Búið er að leggja malbik á planið á útsýnishólnum í Óslandi sem oftast er kallaður Gónhóll en þaðan er besta yfirsýnin yfir innsiglinguna um ósinn. Það var góð framkvæmd og mikil þörf að malbika þetta plan sem er mikið notað alla daga allt árið auk þess sem þetta er vinsæll viðkomustaður ferðahópa á sumrin. Lokið er malbikun á svæðinu við Kaffihornið og Hárgreiðslustofu Ingibjargar einnig hefur verið unnið við malbikun á götum í bænum.
Hafnarbrautin hefur fengið breytt útlit, komnar eru þar all vígalegar grjóteyjur sem ætlað er það hlutverk bæði að draga úr hraðakstri um Hafnarbrautina og fegra umhverfið.





Skrifa athugasemd