Gengið í Efstafellsgil um helgina.
Ferðafélagið stendur fyrir fjölskylduferð í Efstafellsgil um helgina. Efstafellsgil er innan og vestan við Hoffell og er farið á bílum inn að jökli þar sem gengið er inn gilið. Þetta þykir mjög falleg leið og auðveld ganga fyrir fólk á öllum aldri. Valur Sveinsson formaður ferðanefndar segir að grillið verði með í ferðinni og verður grillað þegar komið er úr gönguferðinni. Gangan tekur 2-3 tíma.
Enn er beðið færis með göngu á Hvannadalshnúk og tilkynningar frá Einari Sigurðssyni fjallaleiðsögumammi í Hofsnesi, sem fer með hópinn, um að nú sé lag að leggja af stað. Fjórtán manns hafa skráð sig í jökulgönguna..
Um síðustu helgi var gengið um Endalausadal í Lóni. Ekið var inn í Laxárdal í Nesjum og innst í dalnum komið í endalausa dalinn og haldið eftir honum yfir í Lón og farið í bíla við urðunarsvæðið í Firði. Mikið er af fallegum gljúfrum á leiðinni og Fjarðaráin er sérkennilega falleg. Gangan tók fjóra tíma með tilheyrandi hvíldum og skoðunum og voru þátttakendur 13.
Þetta er auðveld og létt gönguleið segir Valur og á flestra færi að ganga hana.





Skrifa athugasemd