Apríl
Börn af Östra Ryd leikskólanum í skógargöngu
born_i_skoginum
Börn af Östra Ryd leikskólanum í skógargöngu

28.04.2005 Apríl

Leikskólinn á Lönguhólum í samstarfi við sænskan leikskóla.

Leikskólinn Lönguhólar byrjaði í haust í samstarfsverkefni innan menntaáætlunar Evrópusambandsins, Sókrates. Nefnist sá liður Comanius og er fyrir leik- grunn- og framhaldsskólastigið. Þessi áætlun er byggð upp til að efla samstarf og þekkingu milli skóla innan Evrópusambandsins. Lönguhólar eru í skólaþróunarverkefni sem nefnist "Learning by doing in Nature in four European Countries", og er megin efni verkefnisins að skoða mismunandi aðstæður hvað varðar nánasta umhverfi skólanna og náttúru, hvernig skólarnir nýta sér þessar aðstæður, hvað er sameiginlegt með skólunum hvað þetta varðar og hvað öðruvísi. Hvað getum við lært af hvert öðru og hvernig er unnið með nánasta umhverfið og náttúruna með börnunum. Um leið skoðum við gæði skólanna og tengjum við þá stefnu að leifa börnunum að prófa/gera/upplifa/læra með því að gera, "Learning by doing".

Þetta tengist heimspekilegum og kennslufræðilegum kenningum Jhons Deweys sem var bandarískur heimspekingur og uppeldisfræðingur. Ákveðið var að vinna verkefnið í ljósi kenninga hans, gera tilraunir með aðferðafræði hans og skoða hvort leikskólarnir eru að vinna að einhverju leyti eftir aðferðafræði hans.

Lönguhólar eru í samstarfi við leikskóla frá Östra Ryd, rétt hjá Söderköping í Svíþjóð og leikskóla frá Hamborg í Þýskalandi. Í Október 2004 fóru Margrét Ingólfsdóttir, Eyrún Axelsdóttir og Maríanna Jónsdóttir til Svíþjóðar þar sem aðilar frá öllum skólunum hittust og skipulögðu verkefnavinnuna ásamt því að skoða aðstæður í Svíþjóð. Núna í maí verður farið til Þýskalands þar sem frekari vinna heldur áfram og aðstæður þar skoðaðar. Stefnt er síðan að því að kennarar frá Svíþjóð og Þýskalandi komi í heimsókn til Lönguhóla árið 2006. Verkefnastjóri Lönguhóla er Eyrún Axelsdóttir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica