Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði
Samfylkingin á Hornafirði hélt aðalfund sinn mán. 25. apríl. Árni Rúnar Þorvaldsson var kjörinn formaður og í stjórn voru kjörin Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Ingvar Þórðarson, Guðrún Ingimundardóttir og Torfi Friðfinnsson. Eiríkur Sigurðsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Gestir á fundinum voru Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Önundur Björnsson varaþingmaður Samfylkingarinnar og Kristinn Bárðason formaður kjördæmisráðs.
Á fundinum urðu mjög gagnlegar umræður um mörg mál. Aðallega var þó rætt um mál er snúa að kjördæminu, formannskosningar í Samfylkingunni og einnig kom fram eindreginn vilji fundarmanna til þess að Samfylkingin á Hornafirði stæði að sérframboði hér á Hornafirði í næstu sveitarstjórnakosningum.
Það er mál sem að nýkjörin stjórn félagsins mun vinna að á þessu starfsári.





Skrifa athugasemd