Tóku þátt í sundmóti á Djúpavogi
Á sumardaginn fyrsta héldu 13 börn, ásamt nokkrum foreldrum og Ásdísi Ögmundsdóttur aðstoðarsundþjálfara austur á Djúpavog þar sem Ungmennafélagið Neisti stóð fyrir sundmóti og bauð til sín keppendum frá Hornafirði. Hornfirsku börnin stóðu sig öll mjög vel, allir fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna og fjórir komust á verðlaunapall. Þetta er í annað sinn sem Neisti bíður Hornfirðingum þátttöku í sundmóti. Erna Einarsdóttir foreldri í hópnum sagði að ferðin hefði í alla staði verið mjög góð og krakkarnir hefðu notið þess að fara í flottu sundlaugina þeirra á Djúpavogi og hún var ekki frá því að nokkurrar öfundar hafi gætt yfir þessari skemmtilegu aðstöðu sem þar er komin og heimamenn meiga vera hreiknir af.
Áður en haldið var heim fór hópurinn á Hótel Framtíðina og þar fengum við frábærlega góðar pizzur og það var alsæll hópur sem hélt heim til Hornafjarðar að öllu þessu loknu sagði Erna





Skrifa athugasemd