Apríl
5. bekkur í heimsókn í Einarslundi
mars-april_05_145
5. bekkur í heimsókn í Einarslundi
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

25.04.2005 Apríl

Heimsókn í Einarslund

Laugardaginn 23.apríl fóru krakkar úr 5 bekk ásamt foreldrum í fuglaskoðunarferð. Lagt var á stað frá tjaldstæðinu með Birni Gísla Arnarsyni leiðsögumanni og var ferðinni heitið í Einarslund. Skoðaðir voru þeir fuglar sem á leið hópsins urðu og Björn fræddi krakkana um þá. Í Einarslundi tók Brynjúlfur Brynjólfsson á móti hópnum og þá var komið að því að fá að fylgjast með hvernig fuglamerkingar færu fram. Björn og Brynjúlfur útskýrðu fyrir hópnum starfsemi þeirra við merkingar fugla, sem gert hefur verið í mörg ár, en er nú á vegum nýju Fuglaathugunarstöðvarinnar. Bæði börn og foreldrar fylgdust með af athygli hvernig fuglarnir voru veiddir í fuglanet og hringur settur á annan fót þeirra. Mest var af skógarþröstum í netunum og einn hrossagaukur sem að sjálfsögðu fékk hring. Krakkarnir lofuðu að láta vita í Fuglaathugunarstöðina ef þau finndu veikan eða dauðan fugl með merki. Þetta er fyrsti skólahópurinn sem þeir félagar fá í heimsókn síðan stöðin var opnuð 24.mars sl. Á heimleiðinni kom hópurinn við í byggðasafninu þar sem Björn sýndi þeim krabba sem hann hafði veitt í Berufirði.

Þetta var alveg frábært og svo gaman að fylgjast með fuglamerkingunum hjá þeim sagði Erna Einarsdóttir ein af foreldrunum og hún er þess fullviss að foreldrarnir hafi ekki haft minni ánægju af ferðinni en börnin.
Að sjálfsögðu var haft meðferðis nesti og "nýjir" skór sem notið var í veðurblíðunni í Einarslundi sem er alveg yndislegur staður..
Kunnum við þeim félögum bestu þakkir fyrir frábæra stund, sagði Erna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica