Heimsókn frá Sisimut á Grænlandi 1.maí
Fyrsta maí koma þrjátíu Grænlendingar í heimsókn til Hornafjarðar. Þetta eru tuttugu og sjö nemendur úr 9. bekk grunnskóla í Sisimiut á Grænlandi ásamt þrem kennurum.Þau munu dvelja hér í eina viku, heimsækja skólann hér, skoða sig um og gera eitt og annað skemmtilegt. Heppuskóla hefur verið falið að skipuleggja þessa heimsókn í samráði við Stefán Ólafsson . Guðmundur Ingi skólastjóri Heppuskóla fer til Reykjavíkur að sækja hópinn og verður þeirra leiðsögumaður á leiðinni austur. Komið verður við á Þingvöllum,Laugarvatni, farið að Gullfossi og Geysi og gist eina nótt á Hofgarði í Öræfum. Daginn eftir verður farið í Skaftafell og þjóðgarðurinn skoðaður undir leiðsögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar og á leiðinni til Hafnar verður staldrað við á nokkrum stöðum. Grænlensku gestirnir munu búa í heimavistinni í Nesjaskóla og borða á Kaffihorninu í boði Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Hugmyndin að þessari heimsókn mun hafa komið upp eftir að komin voru á vinabæjartengsl milli Sisimut og Hafnar, þá fóru fulltrúar Hafnar til Sisimut og
var þar mikill áhugi fyrir að koma á samskiptum milli skólanna og er þessi heimsókn liður í því.





Skrifa athugasemd