Apríl
Hluti Þinggesta
Hluti_tinggesta
Hluti Þinggesta
Mynd 1 af 2
1 2

23.04.2005 Apríl

Þing USÚ haldið í Nýheimum

72. Þing USÚ var haldið í Nýheimum miðvikudaginn 20.apríl. Á dagskrá voru venjuleg þingstörf og bar fátt til tíðinda. Góð mæting var á þingið að þessu og sátu 35 gestir þingið. Það er stjórninni mikið gleðiefni að starfi þess skuli vera sýndur slíkur áhugi. Í stjórn USÚ voru kjörin Ragnhildur Einarsdóttir formaður, Kjartan Hreinsson og ný inn í stjórn kemur Jóhanna Kristjánsdóttir. Guðrún Þorsteinsdóttir gengur úr stjórn.
Í skýrslu stjórnar kom m.a. fram að á síðasta ári vann stjórnin að umsókn til þess að fá að halda unglingalandsmót UMFÍ árið 2006. Þetta mót er haldið ár hvert um verslunarmannahelgi og er fyrir ungmenni á aldrinum 11-18 ára. Um 10.000 gestir hafa verið að sækja þessi mót og töldum við í stjórninni og teljum reyndar enn að svona viðburður gæti orðið lyftistöng fyrir íþróttalíf í sýslunni. Í stuttu máli þá fengum við ekki mótið 2006 en erum hvött til að sækja um aftur og reyna þá frekar að halda það 2007. Annað stórt verkefni sem stjórnin hefur unnið að er að opna skrifstofu fyrir sambandið. Við fengum gott herbergi í Sindrahúsinu að Hafnarbraut 25, þ.e. litla húsinu við hliðina á ráðhúsi bæjarins. Þar er verið að vinna að því að gera fína aðstöðu fyrir aðildarfélög USÚ og er sú vinna er langt komin.
Á þinginu sat gestur frá Umennafélagi Íslands Birgir Gunnlaugsson og veitti hann Gesti Halldórssyni starfsmerki UMFÍ fyrir gott starf í getraununum. Gestur hefur unnið getraunastarfið í sjálfboðavinnu og fært Knd. Sindra umtalsverðar tekjur í gegnum tíðina með fórnfúsu starfi og komið Sindra í hóp tekjuhæstu félaga á landsvísu. Á þinginu sat líka Ásgerður Gylfadóttir fyrir Rauða kross Íslands. Hornafjarðardeild Rauða krossins bauð öllum þjálfurum sem starfa í aðildarfélögum USÚ á skyndihjálparnámskeið fyrr í vetur og gaf öllum þátttakendum að lokum tösku sem inniheldur búnað til fyrstu hjálpar. Hugsunin er að hver þjálfari sé alltaf með töskuna meðferðis bæði á æfingum og ekki síður á keppnisferðalögum. Þessar töskur voru afhendar á þinginu. Í þinglok bauð USÚ upp á kaffi og tertusneið í nýju skrifstoufuhúsnæði sambandsins að Hafnarbraut 25.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica