Apríl
Guðbjörg skírði skipið Ingibjörgu
Gudbjorg_skirdi_skipid_Ingibjorgu
Guðbjörg skírði skipið Ingibjörgu
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

22.04.2005 Apríl

Björgunarskipið Ingibjörg vígt.

Björgunarskip Hornfirðinga var vígt í gær sumardaginn fyrsta við hátíðlega athöfn Friðþór Harðarson formaður björgunarbátasjóðs Hornafjarðar bauð gesti velkomna og byrjaði á að þakka fyrirtækjum og einstaklingum fyrir framlög til handa bátasjóðnum. Því næst kom Vignir Júlíusson og gekk skipið, en það er hjátrú hjá Bretum að áður en skipum er gefið nafn skuli ganga skipið, fyrst rangsælis og síðan réttsælis. Þegar Vignir hafði,,gengið skipið??vígði sr.Fjölnir Ásbjörnsson sóknarprestur björgunarskipið og bað því blessunar og velfarnaðar og þá var komið að Guðbjörgu Sigurðardóttur að gefa skipinu nafnið Ingibjörg sem er nafn móður hennar Ingibjörgu Guðmundsdóttur sem í fjölda ára starfaði að björgunar og slysavarnarmálum á Höfn, hún var m.a. formaður slysavarnadeildarinnar Framtíðar frá 21. febrúar 1968 og allt til að hún lést 27. febrúar 1985.
Guðbjörg hefur eins og móðir hennar unnið mikið að slysavarnarmálum hér á staðnum. Árið 1985 var stofnaður minningarsjóður Ingibjargar Guðmundsdóttur til styrktar slysavarnadeildunum á Höfn og við athöfnina í gær var tilkynnt að sjóðurinn gæfi siglingatölvu í björgunarskipið Ingibjörgu.

Í bréfi til Björgunarfélagsins frá Eyjólfi Guðmundssyni skólameistara Fas var tilkynnt að Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu biði þeim mönnum sem verða á skipinu og þeim sem vinna að sjóbjörgun á vegum félagsins, ókeypis 30 brúttótonna nám sem kennt er við skólann.
Anna María Kristjánsdóttir gerði grein fyrir nafni skipsins og Halldóra Bergljót Jónsdóttir flutti árnaðaróskir frá Bæjarfélaginu

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica