Apríl
Hópur útlendinga í kríuvarpinu með myndavélar á lofti
Hopur_utlendinga_i_kriuvarpinu_med_myndavelar_a_lofti
Hópur útlendinga í kríuvarpinu með myndavélar á lofti

22.04.2005 Apríl

Krían er komin

Fyrsta kría sumarsins sást á Höfn rétt fyrir kl. sex sumardaginn fyrsta 21.apríl og sá sem átti kríu-fundinn að þessu sinni var Þórir Snorrason. sem sá kríu á flugi yfir höfninni. Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöðinni segir að þrjár kríur hafi sést á Breiðdalsvík í gær og svo fari þeim fljótt fjölgandi á næstu 2-3 dögum. Björn hefur séð lítilsháttar af flækingsfuglum í dag s.s. barrfinkur, landsvölur og gransöngvara.
Ein bleshæna er lengi búin að halda sig hér innst í höfninni og lætur sér fátt um finnast þó fólk veiti henni talsverða athygli og mikið sé tekið af myndum af henni. Hún heldur sig í hæfilegri fjarlægð frá æðarfuglum og öðrum fuglum í höfninni og virðist bara vilja vera ein útaf fyrir sig

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica