Viðvörunarljós við brúna á Jökulsá á Breiðamerkursandi
Vegagerðin hefur sett viðvörunarljós við brúna á Jökulsá á Breiðamerkursandi.
Ljósin virka þannig að þegar bíll nálgast brúna fer hann yfir skynjara sem kveikir á gulu blikkandi aðvörunarljósi sem gefur til kynna að bíll sé að koma að brúnni á leið yfir.
Aðstæður eru þannig beggja megin brúarinnar að ekki sést til bíls sem væri að koma á móti inn á brúna nema þá allra stærstu og vonandi kemur þessi aðvörunarbúnaður í veg fyrir árekstra á brúnni í framtíðinni. Lögreglan segir að venjulega hafi orðið 3-4 árekstrar á brúnni á hverju ári,margir stórir árekstrar og oft mikið eignatjón en ekki alvarleg slys á fólki og oft hafi legið við alvarlegum slysum þar.
Lögreglan segir að mikið sé kvartað yfir gangandi fólki á brúnni sem setji bæði sig og akandi vegfarendur í hættu. Ferðafólk fer mikið gangandi um svæðið beggja megin við ána og hefur þá oft hugann meira við stórbrotið útsýnið af brúnni en umferð ökutækja.
Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að þetta verði eina brúin hér suð-austanlands sem viðvörunarljós verði sett á í sumar.





Skrifa athugasemd