Vortónleikar Karlakórsins Jökuls
Á hverju vori fagnar Karlakórinn Jökull vorinu með tónleikum á sumardaginn fyrsta. Tónleikarnir að þessu sinni verða í Hafnarkirkju kl.20.00 á sumardaginn fyrsta og verða svo endurteknir á föstudagskvöldið 22.apríl kl.20.00. Undirleikari er Guðlaug Hestnes, stjórnandi Jóhann Morávek og einsöngvari er Ólafur Kjartan Sigurðarson.
Aðgangseyrir er 1500 kr og frítt fyrir börn yngri en 14 ára.
Karlarnir í Jökli láta ekki þar við sitja því þeir eru að undirbúa söngferð til Siglufjarðar þar sem þeir munu syngja fyrir Siglfirðinga laugardaginn 30 apríl kl. 17.00. Með í þeirri ferð og einsöngvari verður fyrrum félagi í Karlakórnum Jökli til margra ára, Erlingur Arason.





Skrifa athugasemd