Vígsla björgunarskipsins og kaffisala í Slysavarnahúsinu
Hin árlega Kaffisala Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar verðu í húsi Slysavarnafélagsins við Álaugareyjarveg KL: 15.00. á morgun, sumardaginn fyrsta. Þetta er ein stærsta fjáröflun slysavarnakvenna á ári hverju. Konur í Slysavarnadeildinni taka sig saman og baka myndarlegar og gómsætar hnallþórur fyrir þenna dag eins og þeim einum er lagið og þegar til þeirra er leitað. Í deildinni eru tæplega 90 konur, áhugasamar konur á öllum aldri. Ný stjór var kosin á aðalfundi deildarinnar 3.aprí sl. og þær sem nú stija við stjórn eru; Þorbjörg Helgadóttir formaður, Guðrún Ósk Óskarsdóttir varaformaður, Ragna Einarsdóttir ritari, Anna María Ríkharðsdóttir gjaldkeri, meðstjórnendur eru Ásta Halldóra Guðmundsdóttir og Eva Eiríksdóttir.
Félagskonum er skipt í nefndir sem hver hefur sitt verkefni og sjá um s.s. viðburði sem upp koma þannig að t.d. eru það kaffinefndarkonur sem sjá um sumardaginn fyrsta.
Nýtt björgunarskip Hornfirðinga verður vígt við hátíðlega athöfn sem fram fer við Hafnarvogina og hefst kl 13.00. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson sóknarprestur mun blessa skipið og verður því gefið nafn.
Meðal viðstaddra við vígsluna verður Jón Gunnarsson framkvæmtarstjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Tökum þátt í þessari hátíðlegu vígslu og eftir henni verður kaffiveislan í slysavarnahúsinu þar sem kræsingarnar bíða.





Skrifa athugasemd