Fuglaathugunarstöðin og FAS í samstarf
Um síðustu helgi var skrifað undir samstarfssamning milli Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) um fuglaathuganir. Markmið samningsins er að efla náttúruskoðun við FAS, auka rannsóknir á fuglum og efla áhugann á þeim. Miðað er við að nemendur FAS vinni fuglaverkefni í öllum áföngum sem tengjast líffræði. Fuglaathugunarstöðin sér um skipulagningu og framkvæmd verkefnanna í samvinnu við líffræðikennara FAS. FAS greiðir samkvæmt reikningi Fuglaathugunarstöðinni fyrir vinnuframlag og annan kostnað sem hlýst af verkefnunum samkvæmt fyrirfram samþykktri verk- og kostnaðaráætlun. Líffræðikennari FAS og fulltrúi Fuglaathugunarstöðvarinnar skulu í apríl og nóvember ár hvert hittast og skipuleggja verkefnavinnu næstu annar. Hægt er að koma á öðrum samstarfsverkefnum sem aðilar eru sammála um og samræmast markmiðum samningsins.
Samninginn undirrituðu Björn G. Arnarson f.h. Fuglaathugunarstöðvarinnar og Eyjólfur Guðmundsson f.h. FAS. Þetta er í fyrsta sinn sem svona samningur er gerður og Fuglaathugunarstöðin er sú fyrsta á landinu, opnuð formlega á Höfn í vetur. Björn hefur undanfarin ár farið með skólanemendur í fuglaskoðunarferðir og er þetta í raun framhald á því bara meira og skipulagðara nám fyrir nemendurna.





Skrifa athugasemd