Apríl
Mjög góð frammistaða Sindrastúlkna í fimleikum
Laugardaginn 16.apríl var haldið Austurlandsmót í fimleikum í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Frá Fimleikadeild Sindra fóru 29 keppendur sem stóðu sig allir með stakri prýði. Í þessa ferð notuðum við nýja Sindrabílinn, en með tilkomu hans mun ferðakostnaður hjá deildinni lækka. Heim komum við svo á laugardagskvöldið með slatta af verðlaunapeningum í farteskinu, ásamt Austurlandsmeistaratign í ýmsum flokkum. Eins og áður hefur verið greint frá í fréttum frá Fimleikadeildinni er keppt í ýmsum þrepum og aldurshópum.
Að ári liðnu verður Austurlandsmótið haldið hér á Höfn. (GG)





Skrifa athugasemd