Ný aðferð við útrýmingu á lúpínu í Skaftafelli
Upplýsingamiðstöðin í Skaftafelli verður opnuð 2. maí og verslunin í byrjun júní. Fyrirkomulag á þjónustu verður svipað og sl. sumar. Núna er verið að lagfæra og endurbæta skrifstofuaðstöðuna í þjónustumiðstöðinni og starfsemi í þjóðgarðinum að komast á stað. Sjálfboðaliðar eru farnir að mæta til vinnu og er mikil ásókn í sjálfboðavinnuna og segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður að sl. sumar hafi meira en 50% af allri sjálfboðavinnu sem unnin var hér á landi verið unnið í Skaftafelli. Helstu verkefni eru gerð göngustíga og útrýming á lúpínunni sem gert hefur sig heimakomna í þjóðgarðinum. Hvað lúpínuna varðar þá ætlar Ragnar að reyna nýja aðferð við útrýmingu hennar sem er einfaldlega þannig, að fá kindur á svæðið og beita þeim á lúpínuna. Ragnar hefur samið við bónda í Öræfum um að fá nokkrar kindur sem verða hafðar á lokuðu svæði þar sem lúpínan hefur breitt úr sér. Þessi aðferð hefur borið góðan árangur í Svínafelli og er hún notuð á norðurlöndum þar sem bæði kindur og íslenskir hestar er beitt bæði í lúpínu og einnig sinu.
Gefist þessi tilraun með kindurnar vel er líklegt að kjöt af þeim verði með öðru bragði en kinda sem ganga á afréttum og að þá verði boðið sérstaklega upp á kjöt með lúpínubragði eða Lúpínu-lamb.





Skrifa athugasemd