Apríl
Malbikunarframkvæmdir
Malbikunarframkvæmdir
Unnið við malbikunarframkvæmdir við Hafnarbraut, á planinu við Kaffihornið og Hárgreiðslustofu Ingibjargar.

15.04.2005 Apríl

Mikilvægt að sýna framkvæmdaraðilum tillitsemi

Nú standa yfir malbikunarframkvæmdir á Höfn og munu þær standa yfir næstu daga. Þessar framkvæmdir hafa óumflýjanlega í för með sér óþægindi fyrir íbúana og geta valdið töfum á umferð og því er nauðsynlegt að sýna framkvæmdaraðilum tillitsemi og fara eftir fyrirmælum og merkingum. Í gær og dag er verið að malbika við Hafnarbrautina (við Kaffihornið). Næstu daga verður unnið við framkvæmdir í Hlíðartúni, Vesturbraut, Kirkjubraut, Norðurbraut, Vogabraut, Smárabraut og í Svalbarði. Einnig stendur til að malbika einn vinsælasta rúntstað innan Hafnar, það er út í Óslandi við minnismerkið þar sem vegfaraendur hafa útsýni yfir innsiglinguna um Hornafjarðarós.

Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar vill minna ökumenn á að í dag er kominn tími til að skipta yfir á sumarhjólbarðana.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica