Bíósýningar hefjast að nýju
Kvikmyndasýningar eru nú að hefjast að nýju í Sindrabæ eftir 5 mánaða hlé. Búið er að gera gagngerar endurbætur á kvikmyndasalnum. Nýir stólar er komnir í salinn en þeir voru innfluttir sérstaklega fyrir sal sem einnig á að nýtast sem kennslustofa með möguleika á smærri fyrirlestrum og tónleikum. Félagsmiðstöðin Þrykkjan mun hafa þar aðstöðu fyrir kvikmyndaklúbbinn sinn. Sýningar hefjast n.k. sunnudag á myndinni Son of the Mask sem er barnamynd með íslensku tali. Á sunnudagskvöldið verður gamanmyndin Meet the fockers sýnd. Stefnt er að því að hafa kvikmyndasýningar aðra hverja viku um helgar.
Rekstraraðili bíósins er Gunnar Ingi Valgeirsson og sýningarstjóri verður eins og áður Brynjúlfur Brynjólfsson.





Skrifa athugasemd