Apríl
Úr myndasafni
Úr myndasafni
Það er alltaf eitthvað um að vera í Þrykkjunni (úr myndasafni)

14.04.2005 Apríl

FAS og Heppuskóli í úrslit

Það var mikil spenna í Þrykkjunni í gær er fyrri umferð Þrykkjuþrauta fór fram. Þar keppti Framhaldsskólinn við Þrykkjuna og Hafnarskóli við Heppuskóla. Keppnin fór þannig að Framhaldsskólinn sigraði Þrykkjuna og Heppuskóli lagði Hafnarskóla. Til úrslita keppa því Framhaldsskólinn og Heppuskóli og fer keppnin fram á mánudagskvöldið kemur í Þrykkjunni. Spyrill í keppninni er Gunnlaugur Bragi Björnsson og háyfirdómari er Sindri Ragnarsson. Þrykkjuþrautir byggjast upp á hraða-vísbendinga -, og almennum spurningum. Þá er einnig keppt í tækjum s.s. billjard og körfu, líka er framkvæmdur látbragðsleikur. Þetta er góð æfing fyrir Spurningakeppni framhaldsskólanna. Núverandi handhafi farandverðlauna Þrykkjuþrauta er lið FAS.

Það verður því spennandi að fylgjast með því hvort FAS nær að halda í farandverðlaunin eða fara þau upp í Heppuskóla. Stuðningsmenn liðanna eru hvattir til að mæta á mánudaginn og hvetja sín lið. Áfram ???????

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica