Apríl
Björgunarskip
Björgunarskip
Gengið frá landfestum
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

14.04.2005 Apríl

Björgunarskipið komið til Hafnar

Björgunarskipið kom til Hafnar um kvöldmatarleitið í gær. Skipið er af gerðinni Arun 1108 frá Bretlandi. Það er 42 brúttólestir og búið tveim caterpillar 485 hestafla aðalvélum. Björn lóðs tók á móti skipinu rétt fyrir utan Ósinn og fylgdi því síðasta spölinn. Ferðin frá Hafnarfirði gekk mjög vel enda góður sjór og ganghraði skipsins um 15 sjómílur. Björgunarskipið verður staðsett á Hornafirði og er það liður í verkefni Landsbjargar og björgunarsveitanna að kaupa og staðsetja björgunarskip sem víðast á landinu til þess að stytta sem mest þann tíma sem fer í siglingar að hugsanlegum stað þar sem aðgerða björgunarskips er þörf.

Framundan er að bæta tækjabúnað skipsins og gera það klárt til siglingar. Til stóð að skipið kæmi til Hafnar sumardaginn fyrsta og þá yrði móttöku athöfn við bryggjuna, en heimkomunni var flýtt og ákveðið að halda formlega móttökuathöfn sumardaginn fyrsta og gefa skipinu þar nafn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica