Apríl
Vestragil, Gamla rafstöðin í Skaftafelli
Vestragil, gamla rafstöðin í Skaftafelli
Vestragil, gamla rafstöðin í Skaftafelli (úr myndasafni)

13.04.2005 Apríl

Tveir ráðnir í stöðu sérfræðinga í þjóðgarðinn í Skaftafelli

Umhverfisstofnun hefur valið tvo úr hópi umsækjenda um stöður sérfræðinga í þjóðgarðinn í Skaftafelli. Ráðin voru Helga Davids á Stafafelli sem verður á starfsstöðinni á Höfn og Kári Kristjánsson á starfstöðina á Kirkjubæjarklaustri.
Helga er með meistarapróf í ísaldarjarðfræði og fornleifafræði einnig í B.Ph.Ísl.-námi í íslensku fyrir erlenda nemendur. Helga hefur unnið ýmis störf tengd þjóðgarðinum í Skaftafelli og starfað þar sem landvörður í 3 sumur. Helga byrjar í nýja starfinu 2. maí og verður með starfsaðstöðu i Nýheimun og einnig verður hún mikið inni á Lónsöræfum í sumar þar sem hún mun sjá um landvörslu þar sem ekki verður neinn auka starfsmaður ráðinn þar.

Kári Kristjánsson hefur undanfarin ár starfað sem sérfræðingur og þjóðgarðsvörður í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum og einnig unnið við landvörslu á hálendinu. Hann er trésmiður að menntun og vann lengi sem fræðslufulltrúi hjá Vinnueftirliti Ríkisins.
Ragnar Frank þjóðgarðsvörður segist mjög ánægður að hafa fengið þessa starfsmenn til liðs við sig og segist hlakka til að starfa með þeim, þau hafi bæði mikla þekkingu á náttúru Íslands og því sem hún hefur uppá að bjóða.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica