Dansnámskeið
Í dag hefst danskennsla í Sindrabæ fyrir krakka í 5.-10. bekk. Kennarar verða frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru en dansnámskeiðið er á vegum Dansklúbbsins Takts. Dansnámskeiðið í fyrra var mjög vel sótt og voru um 30 krakkar sem tóku þátt í námskeiðinu þá. Þeir sem ekki hafa skráð sig er bent á að hafa samband við Birnu í 849 4578 eða Öllu í 895 1654. Námskeiðið er niðurgreitt með styrk sem Dansklúbburinn Taktur fékk frá Æskulýðs- og tómstundarráði og kostar kr.2500.- Stefnt er að halda námskeið fyrir fullorðna ef næg þáttaka fæst.
Í Dansklúbbnum Takti eru um 20 félagar og fara æfingar fram einu sinni í viku að Hafnarbraut 34 (sama húsi og Efnalaug Dóru). Þeir sem hafa áhuga á að æfa dans með klúbbnum er bent á að taka dansskóna úr hillunni, dusta af þeim rykið og mæta bara á næstu æfingu.





Skrifa athugasemd