Apríl
Færðu Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands ágóða af tombólu
Tvær ungar stúlkur Árdís Ilmur Jóhannsdóttir og Dóra Björg Björnsdóttir færðu Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands 800 krónur en það er ágóði af tombólu sem þær héldu í dag. Það er ánægjulegt að vita til þess hve margir Hornfirðingar eru reiðubúnir að leggja sitt af mörkum og styrkja bágstadda. Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem félaginu berst gjöf frá krökkum sem halda tombólu.





Skrifa athugasemd