Malbiksframkvæmdir í Almannaskarði og á Höfn
Fyrirhugað er að hefja malbiksframkvæmdir í Almannaskarðsgöngum í næstu viku ef veður leyfir. Malarvinnslan hf sem er undirverktaki hjá Héraðsverki ehf hefur nú sett upp malbiksstöð við syðri enda gangna og nú mun allt vera klárt til framleiðslu. Steinefni eru tekin í Fjarðará í Lóni. Í verkið fara um 2500 tonn af malbiki og verður það lagt út í tveimur 5 cm. lögum. Breidd malbiks er 6,3 m auk útskota. Ráðgert er að taka í einni færu alla breidd vegarins. Í tengslum við malbiksframkvæmdirnar í göngunum hefur Sveitarfélagið Hornafjörður ákveðið að gera átak í gatnakerfi bæjarins. Að sögn Helga Más Pálssonar er fyrirhugað að leggja alls um 15 þúsund fermetrar af malbiki á Höfn.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem malbik er notað á Höfn, en fram til þessa hefur verið notuð olíumöl, klæðning og Ralumac. Malarvinnslan hf mun einnig bjóða þeim Hornfirðingum malbik sem hafa áhuga á að malbika heimkeyrslur sínar.





Skrifa athugasemd