Launin eru stórbrotið útsýni af hæsta tind Íslands
Ferðafélagið stefnir að göngu á Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands á næstu vikum. Þetta er erfið ganga en launin eru stórbrotið útsýni af hnúknum, auk stoltsins yfir að hafa staðið á hæsta tindi landsins eins og þeir Hofsnesmenn orða það. Leiðsögumaður í ferðinni er Einar Rúnar Sigurðsson hjá Öræfaferðum, en hann er einn reyndasti leiðsögumaður á þessum slóðum. Einar hefur farið um 190 ferðir upp á Hvannadalshnjúk og er því hópurinn í góðum höndum. Reiknað er með að ferðin taki um 12-15 tíma og því er nauðsynlegt að þátttakendur séu í góðu formi. Um 10 félagar í ferðafélaginu héldu á hnjúkinn fyrir þremur árum og síðan átti að fara aftur ári síðar en því miður þurfti að hætta við þá ferð.
Þar sem veður skiptir mestu máli þegar haldið verður á hnjúkinn er ekki víst að farið verði um helgi, það gæti eins orðið á virkum degi því veðurguðirnir fara ekki í helgarfrí. Hópurinn verður því kallaður út með eins til tveggja daga fyrirvara þegar veðurspá lofar björtu og fallegu veðri með útsýni til allra landshorna.
Áhugasamir geta haft samband við Val Sveinsson í síma 895 9946 eða sent honum póst á valur@hornafjordur.is til að skrá sig til þátttöku eða leita eftir upplýsingum um ferðina.




Skrifa athugasemd