Fiskistofa með 5 ný störf á Hornafirði
Sjávarútvegsráðherra kynni í Vestmannaeyjum í dag breytingar sem verða gerðar á Veiðieftirliti Fiskistofu. Þær felast í að stofnuð verða fjögur ný útibú Fiskistofu, á Höfn, í Vestmannaeyjum, í Stykkishólmi og Grindavík. Bætt verður við 4 nýjum stöðugildum í veiðieftirliti. Þeir sem við það starfa eru nú 35 og búa á höfuðborgarsvæðinu. Á næsta ári verður opnað nýtt útibú hér á Höfn sem myndi þjónusta landssvæðinu frá Höfn að Vopnafirði. Í fyrstu yrðu ráðnir tveir eftirlitsmenn og yfirmaður útibús. Á árinu 2007 yrðu svo ráðnir tveir eftirlitsmenn til viðbótar hér á Höfn og því yrði heildarstarfsmannafjöldi fimm manns.
Það verða því stofnuð fjögur ný útibú; á Höfn, í Vestmannaeyjum, Stykkishólmi og Grindavík auk þess sem eftirlitsmönnum verður fjölgað á Akureyri. Árið 2009 verða starfsmenn veiðieftirlitsins því 39 talsins en eru nú 35. Hér er verið að stíga skref í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að treysta undirstöður byggðar í landinu og jafna skilyrði til atvinnu. Eftirlit Fiskistofu fer fram þar sem sjávarútvegur er stundaður og því er eðlilegt að starfsemin sé staðsett þar.





Skrifa athugasemd