Útivist og heilbrigt líferni, ráðstefna í Freysnesi
Ráðstefna sem ber heitið Útivist og heilbrigt líferni, verður haldin í Freysnesi í Öræfum dagana 5.-7. maí nk. Ráðstefnan er á vegum Umhverfisráðuneytisins og Norðurlandaráðs en Landvernd sér um undirbúning hennar. Þar verður margt góðra gesta sem mikið láta sig varða þjóðgarða, útivistarsvæði og hvernig fólk getur hlúð að og notið þessara staða og um leið byggt upp eigið heilbrigði með umgengni við náttúruna. Meðal þeirra sem verða með fyrirlestra á ráðstefnunni eru; Anna Sigríður Þórðardóttir umhverfisráðherra, Vigdís Finnbogadóttir fyrrv.forseti, Jack D. Ives og Roger Croft frá Scotlandi báðir miklir Skaftafellsunnendur. Um eitt hundrað manns munu sitja ráðstefnuna og þar af eru 70-80 erlendir gestir víða að. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður mun fara með ráðstefnugesti í stutta kynningarferð um Skaftafell og nágrenni.
Til stóð að halda þessa ráðstefnu sl. haust í tilefni af stækkun þjóðgarðsins en sökum mikils undirbúnings var henni frestað þar til nú.





Skrifa athugasemd