Apríl

Framkvæmdir við Olís

Endurnýjun og breytingar á planinu við Olís - 30.04.2005 Apríl

Framkvæmdir við endurnýjun og breytingar á planinu við Olís á Höfn eru hafnar. Byrjað er á jarðvegsskiptingu á þvottaplaninu og verður allt planið fullklárað áður en aðal ferðatíminn byrjar. Haukur Sveinbjörnsson á Olís segir að ekki sé víst að tími vinnist til að setja þakið yfir eldsneytisdælurnar núna áður en sumarumferðin byrjar og þá verður þeim framkvæmdum frestað til haustsins. Góð aðstaða fyrir losun og þrif húsbíla- og hjólhýsa. Verktakar á staðnum sjá um alla vinnu við planið. Ellingsen dagar verða á Olís um helgina og í dag laugardag verður þar til viðtals sérfróður ráðgjafi um notkun á gasi í sumarbústöðum, húsbílum og öðrum stöðum þar sem notuð eru gastæki. Lesa meira
 
Í sláturhúsinu 19.september

Norðlenska matborðið leigir sláturhúsið á Höfn og rekstur þess - 30.04.2005 Apríl

Aðalfundur Sláturfélagsins Búa svf. var haldinn á Hótel Höfn s.l. miðvikudag. Fram kom á fundinum að á liðnu ári urðu miklar breytingar á starfsemi félagsins. Skömmu fyrir upphaf sláturtíðar s.l. haust varð ljóst að Byggðastofnun mundi ekki veita bakábyrgð vegna afurðalána sauðfjárafurða eins og verið hafði frá 2001 og í kjölfar þess hafnaði Landsbanki Íslands hf. að veita félaginu afurðalán. Samið var um það við Norðlenska matborðið ehf. á Akureyri, að þeir keyptu afurðir beint af bændum við innlegg í sláturtíð, en Sláturfélagið Búi svf. annaðist framkvæmd slátrunarinnar samkvæmt sérstökum verktökusamningi. Nú hafa mál þróast á þann veg að Sláturfélagið Búi svf. hefur keypt sláturhúsið á Höfn, en jafnframt hefur verið gerður langtíma leigusamningur við Norðlenska matborðið ehf. um leigu hússins og rekstur þess. Lesa meira
 
Nýtt útlit  á Hafnarbrautinni

Malbikunar og gatnaframkvæmdir á Höfn. - 29.04.2005 Apríl

Malbikunarframkvæmdir hafa staðið yfir á Höfn undanfarið. Búið er að leggja malbik á planið á útsýnishólnum í Óslandi sem oftast er kallaður Gónhóll en þaðan er besta yfirsýnin yfir innsiglinguna um ósinn. Það var góð framkvæmd og mikil þörf að malbika þetta plan sem er mikið notað alla daga allt árið auk þess sem þetta er vinsæll viðkomustaður ferðahópa á sumrin. Lokið er malbikun á svæðinu við Kaffihornið og Hárgreiðslustofu Ingibjargar einnig hefur verið unnið við malbikun á götum í bænum. Hafnarbrautin hefur fengið breytt útlit, komnar eru þar all vígalegar grjóteyjur sem ætlað er það hlutverk bæði að draga úr hraðakstri um Hafnarbrautina og fegra umhverfið. Lesa meira
 
Jökulsá í Lóni, sólsetur

Gengið í Efstafellsgil um helgina. - 28.04.2005 Apríl

Ferðafélagið stendur fyrir fjölskylduferð í Efstafellsgil um helgina. Efstafellsgil er innan og vestan við Hoffell og er farið á bílum inn að jökli þar sem gengið er inn gilið. Þetta þykir mjög falleg leið og auðveld ganga fyrir fólk á öllum aldri. Valur Sveinsson formaður ferðanefndar segir að grillið verði með í ferðinni og verður grillað þegar komið er úr gönguferðinni. Gangan tekur 2-3 tíma. |nl|Enn er beðið færis með göngu á Hvannadalshnúk og tilkynningar frá Einari Sigurðssyni fjallaleiðsögumammi í Hofsnesi, sem fer með hópinn, um að nú sé lag að leggja af stað. Fjórtán manns hafa skráð sig í jökulgönguna.. Lesa meira
 
Börn af Östra Ryd leikskólanum í skógargöngu

Leikskólinn á Lönguhólum í samstarfi við sænskan leikskóla. - 28.04.2005 Apríl

Leikskólinn Lönguhólar byrjaði í haust í samstarfsverkefni innan menntaáætlunar Evrópusambandsins, Sókrates. Nefnist sá liður Comanius og er fyrir leik- grunn- og framhaldsskólastigið. Þessi áætlun er byggð upp til að efla samstarf og þekkingu milli skóla innan Evrópusambandsins. Lönguhólar eru í skólaþróunarverkefni sem nefnist “Learning by doing in Nature in four European Countries”, og er megin efni verkefnisins að skoða mismunandi aðstæður hvað varðar nánasta umhverfi skólanna og náttúru, hvernig skólarnir nýta sér þessar aðstæður, hvað er sameiginlegt með skólunum hvað þetta varðar og hvað öðruvísi. Hvað getum við lært af hvert öðru og hvernig er unnið með nánasta umhverfið og náttúruna með börnunum. Um leið skoðum við gæði skólanna og tengjum við þá stefnu að leifa börnunum að prófa/gera/upplifa/læra með því að gera, “Learning by doing”. Lesa meira
 
Aðalfundur Samfylkingarinnar

Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði - 27.04.2005 Apríl

Samfylkingin á Hornafirði hélt aðalfund sinn mán. 25. apríl. Árni Rúnar Þorvaldsson var kjörinn formaður og í stjórn voru kjörin Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Ingvar Þórðarson, Guðrún Ingimundardóttir og Torfi Friðfinnsson. Eiríkur Sigurðsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. |nl|Gestir á fundinum voru Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Önundur Björnsson varaþingmaður Samfylkingarinnar og Kristinn Bárðason formaður kjördæmisráðs. |nl|Á fundinum urðu mjög gagnlegar umræður um mörg mál. Aðallega var þó rætt um mál er snúa að kjördæminu, formannskosningar í Samfylkingunni og einnig kom fram eindreginn vilji fundarmanna til þess að Samfylkingin á Hornafirði stæði að sérframboði hér á Hornafirði í næstu sveitarstjórnakosningum. Lesa meira
 
Höfn

Aðalskipulag sveitarfélagsins í endurskoðun. - 27.04.2005 Apríl

Nú stendur yfir endurskoðun á aðalskipulagi í Sveitarfélaginu Hornafirði og er stefnt að því að tillögur þess verði tilbúnar nú í byrjun sumars. Íbúum sveitarfélagsins hefur borist bréf þar sem þeir eru vinsamlega beðnir að koma á framfæri við starfsmenn tækni-og umhverfissvið hafi þeir hug á einhverjum framkvæmdum. Þetta gætu verið framkvæmdir í sambandi við skógrækt, frístundabyggð eða aðra breyting á landnotkun í dreifbýli út frá núgildandi skipulagi. Einnig eru íbúar í þéttbýli hvattir til að koma sínum hugmyndum á framfæri. Lesa meira
 
Lögreglan í broddi fylkingar

Hjólað í vinnuna-keppnin hefst 2.maí. - 26.04.2005 Apríl

Þann 2.maí hefst hvatningaverkefnið “Hjólað í vinnuna” sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir. Þetta er fyrirtækja – og stofnana keppni og er markmiðið með því að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, hagkvæmnum og umhverfisvænum samgöngumáta. Keppnin er byggð í kringum heimasíðu verkefnisins sem er vistu á isisport.is. Keppt er í 6 flokkum um flesta daga og flesta km, hlutfallslega miðað við starfsmannafjölda í fyrirtækjum. Þannig er aðalatriðið að fá sem flesta með, sem oftast. |nl|Í fyrra stóðu Hornfirðingar sig mjög vel í þessari keppni og vill æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar hvetja alla til að taka þátt í verkefninu sem hefst eins og fyrr segir mánudaginn 2.maí og stendur til 13.maí. Fyrirtæki og eða stofnanir finna einhvern úr sínum röðum til að halda utan um verkefnið og sjá um skráningu inn á vefnum isisport.is þar sem keppnin er vistuð. Lesa meira
 
Karlakórinn Jökull

Tónleikar Karlakórsins frábærir - 26.04.2005 Apríl

Vortónleikar Karlakórsins Jökuls um helgina tókust frábærlega vel og voru alls 194 tónleikagestir bæði kvöldin. Þetta er besta aðsókn ef frá eru taldir afmælistónleikar kórsins, segir Borgþór Freysteinsson, og undirtektir voru svo góðar að tónleikarnir á laugardagskvöldinu voru meira en hálftíma lengri en til stóð því alltaf var beðið um meiri söng. |nl|Einsöngvari með kórnum var Ólafur Kjartan Sigurðsson baritón sem fór á kostum og töfraði áheyrendur með sinni stórkostlegu rödd, skemmtilegri framkomu og léttu gríni sem vakti mikinn hlátur. Borgþór segir að Ólafi hafi þótt gott að syngja fyrir Hornfirðinga og hefði mikinn áhuga á að koma hingað aftur og vera þá með meiri dagskrá. Að venju var söngur karlanna frábær og lagavalið skemmtilegt. Lesa meira
 
Sundkapparnir sem tóku þátt í sundmótinu

Tóku þátt í sundmóti á Djúpavogi - 25.04.2005 Apríl

Á sumardaginn fyrsta héldu 13 börn, ásamt nokkrum foreldrum og Ásdísi Ögmundsdóttur aðstoðarsundþjálfara austur á Djúpavog þar sem Ungmennafélagið Neisti stóð fyrir sundmóti og bauð til sín keppendum frá Hornafirði. Hornfirsku börnin stóðu sig öll mjög vel, allir fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna og fjórir komust á verðlaunapall. Þetta er í annað sinn sem Neisti bíður Hornfirðingum þátttöku í sundmóti. Erna Einarsdóttir foreldri í hópnum sagði að ferðin hefði í alla staði verið mjög góð og krakkarnir hefðu notið þess að fara í flottu sundlaugina þeirra á Djúpavogi og hún var ekki frá því að nokkurrar öfundar hafi gætt yfir þessari skemmtilegu aðstöðu sem þar er komin og heimamenn meiga vera hreiknir af. Lesa meira
 
Hornfirska skemmtifélagið hefur sýnt á hótel höfn

Norðurljósablúshátíð 2006 - 25.04.2005 Apríl

Kynningarfundur Hornfirska skemmtifélagsins og Ferðaþjónustu Hornafjarðar var haldinn í Nýheimum 7.apríl sl. |nl|Kristín G. Gestsdóttir formaður Skemmtifélagsins sagði frá starfsemi félagsins og stiklaði á stóru í sögu þess. félagið var stofnað 2003 og hefur sett upp þrjár sýningar á Hótel Höfn; Slappaðu af, Með allt á hreinu og Diskó en tvær þær síðarnefndu voru einnig sýndar á veitingahúsinu Broadway í Reykjavík. Markmið félagsins er að vinna að uppfærslum sem gera kröfur til flytjenda og starfsfólks sem eflir það í listgrein sinni og alls komu 54 einstaklingar að þessum þrem uppfærslum. |nl|Ari Þorsteinsson lýsti hugtakinu Crestive indudtry eða skapandi iðnaði og sagði það lýsa starfsemi skemmtifélagsins. Á fundinum sýndi hann glærur frá Ágústi Einarssyni prófessor í viðskiptadeild Háskóla Íslands þar sem sýnt er fram á að skemmtanaiðnaðurinn er þjóðhagslega hagkvæmur. . Ari fór í gegn um hugmyndafræðina á bak við klasa og útskýrði hvernig skemmtifélagið smellpassaði inn í Ferðaþjónustuklasa Hornafjarðar. Ari sagði frá því að í vor verður haldin alþjóðleg ráðstefna á Höfn. Hann lagði til að Skemmtifélagið tæki að sér að búa til og flytja skemmtiatriði fyrir rástefnugesti og að það yrði nokkurskonar þróunarverkefni fyrir Skemmtifélagið. Lesa meira
 
5. bekkur í heimsókn í Einarslundi

Heimsókn í Einarslund - 25.04.2005 Apríl

Laugardaginn 23.apríl fóru krakkar úr 5 bekk ásamt foreldrum í fuglaskoðunarferð. Lagt var á stað frá tjaldstæðinu með Birni Gísla Arnarsyni leiðsögumanni og var ferðinni heitið í Einarslund. Skoðaðir voru þeir fuglar sem á leið hópsins urðu og Björn fræddi krakkana um þá. Í Einarslundi tók Brynjúlfur Brynjólfsson á móti hópnum og þá var komið að því að fá að fylgjast með hvernig fuglamerkingar færu fram. Björn og Brynjúlfur útskýrðu fyrir hópnum starfsemi þeirra við merkingar fugla, sem gert hefur verið í mörg ár, en er nú á vegum nýju Fuglaathugunarstöðvarinnar. Bæði börn og foreldrar fylgdust með af athygli hvernig fuglarnir voru veiddir í fuglanet og hringur settur á annan fót þeirra. Mest var af skógarþröstum í netunum og einn hrossagaukur sem að sjálfsögðu fékk hring. Krakkarnir lofuðu að láta vita í Fuglaathugunarstöðina ef þau finndu veikan eða dauðan fugl með merki. Þetta er fyrsti skólahópurinn sem þeir félagar fá í heimsókn síðan stöðin var opnuð 24.mars sl. Á heimleiðinni kom hópurinn við í byggðasafninu þar sem Björn sýndi þeim krabba sem hann hafði veitt í Berufirði. Lesa meira
 
Grænlenskir krakkar á leik

Heimsókn frá Sisimut á Grænlandi 1.maí - 25.04.2005 Apríl

Fyrsta maí koma þrjátíu Grænlendingar í heimsókn til Hornafjarðar. Þetta eru tuttugu og sjö nemendur úr 9. bekk grunnskóla í Sisimiut á Grænlandi ásamt þrem kennurum.Þau munu dvelja hér í eina viku, heimsækja skólann hér, skoða sig um og gera eitt og annað skemmtilegt. Heppuskóla hefur verið falið að skipuleggja þessa heimsókn í samráði við Stefán Ólafsson . Guðmundur Ingi skólastjóri Heppuskóla fer til Reykjavíkur að sækja hópinn og verður þeirra leiðsögumaður á leiðinni austur. Komið verður við á Þingvöllum,Laugarvatni, farið að Gullfossi og Geysi og gist eina nótt á Hofgarði í Öræfum. Daginn eftir verður farið í Skaftafell og þjóðgarðurinn skoðaður undir leiðsögn Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar og á leiðinni til Hafnar verður staldrað við á nokkrum stöðum. Grænlensku gestirnir munu búa í heimavistinni í Nesjaskóla og borða á Kaffihorninu í boði Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Lesa meira
 
Úrslit í unglingaflokki

Firmakeppni við Stekkhól á laugardag. - 23.04.2005 Apríl

Hestamannafélagið Hornfirðingur efnir til firmakeppni við Stekkhól á morgun,laugardag og hefst hún kl.14.00. Firmakeppnin er eina fjáröflunin sem félagið stendur fyrir og er leitað til allra félaga og stofnana á staðnum um styrk. Knapar draga síðan um hvaða félag eða stofnun þeir keppa fyrir og hefur knapinn frjálst val um hvað hann sýnir. Sigfús Þorsteinsson hestamaður segir að tölt sé vinsælasta valgreinin en svo er heilmikil fjölbreytni í þessu og börn og unglingar velja þá sýningu sem þau vilja og ráða best við. Keppt er í flokkum karla , kvenna, barna, unglinga og hugsanlega verður höfðingjaflokkur þar sem knapar yfir 50-60 ára aldrinum keppa. |nl|Námskeið með kennslu í íþróttahestamennsku verður haldið dagana 5.-6. maí, kennari verður Hulda Gústafsdóttir. Ýmislegt fleira er á döfinni hjá Hornfirðingi því stefnt er á að halda hér opið íþróttamót 24.maí sem er fyrir allt austurland og um 20. júní verður félagsmót hestamanna við Stekkhól. Lesa meira
 
Hluti Þinggesta

Þing USÚ haldið í Nýheimum - 23.04.2005 Apríl

72. Þing USÚ var haldið í Nýheimum miðvikudaginn 20.apríl. Á dagskrá voru venjuleg þingstörf og bar fátt til tíðinda. Góð mæting var á þingið að þessu og sátu 35 gestir þingið. Það er stjórninni mikið gleðiefni að starfi þess skuli vera sýndur slíkur áhugi. Í stjórn USÚ voru kjörin Ragnhildur Einarsdóttir formaður, Kjartan Hreinsson og ný inn í stjórn kemur Jóhanna Kristjánsdóttir. Guðrún Þorsteinsdóttir gengur úr stjórn. Í skýrslu stjórnar kom m.a. fram að á síðasta ári vann stjórnin að umsókn til þess að fá að halda unglingalandsmót UMFÍ árið 2006. Þetta mót er haldið ár hvert um verslunarmannahelgi og er fyrir ungmenni á aldrinum 11-18 ára. Um 10.000 gestir hafa verið að sækja þessi mót og töldum við í stjórninni og teljum reyndar enn að svona viðburður gæti orðið lyftistöng fyrir íþróttalíf í sýslunni. Í stuttu máli þá fengum við ekki mótið 2006 en erum hvött til að sækja um aftur og reyna þá frekar að halda það 2007. Annað stórt verkefni sem stjórnin hefur unnið að er að opna skrifstofu fyrir sambandið. Lesa meira
 
Guðbjörg skírði skipið Ingibjörgu

Björgunarskipið Ingibjörg vígt. - 22.04.2005 Apríl

Björgunarskip Hornfirðinga var vígt í gær sumardaginn fyrsta við hátíðlega athöfn Friðþór Harðarson formaður björgunarbátasjóðs Hornafjarðar bauð gesti velkomna og byrjaði á að þakka fyrirtækjum og einstaklingum fyrir framlög til handa bátasjóðnum. Því næst kom Vignir Júlíusson og gekk skipið, en það er hjátrú hjá Bretum að áður en skipum er gefið nafn skuli ganga skipið, fyrst rangsælis og síðan réttsælis. Þegar Vignir hafði,,gengið skipið’’vígði sr.Fjölnir Ásbjörnsson sóknarprestur björgunarskipið og bað því blessunar og velfarnaðar og þá var komið að Guðbjörgu Sigurðardóttur að gefa skipinu nafnið Ingibjörg sem er nafn móður hennar Ingibjörgu Guðmundsdóttur sem í fjölda ára starfaði að björgunar og slysavarnarmálum á Höfn, hún var m.a. formaður slysavarnadeildarinnar Framtíðar frá 21. febrúar 1968 og allt til að hún lést 27. febrúar 1985. |nl|Guðbjörg hefur eins og móðir hennar unnið mikið að slysavarnarmálum hér á staðnum. Árið 1985 var stofnaður minningarsjóður Ingibjargar Guðmundsdóttur til styrktar slysavarnadeildunum á Höfn og við athöfnina í gær var tilkynnt að sjóðurinn gæfi siglingatölvu í björgunarskipið Ingibjörgu. Lesa meira
 
Hópur útlendinga í kríuvarpinu með myndavélar á lofti

Krían er komin - 22.04.2005 Apríl

Fyrsta kría sumarsins sást á Höfn rétt fyrir kl. sex sumardaginn fyrsta 21.apríl og sá sem átti kríu-fundinn að þessu sinni var Þórir Snorrason. sem sá kríu á flugi yfir höfninni. Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöðinni segir að þrjár kríur hafi sést á Breiðdalsvík í gær og svo fari þeim fljótt fjölgandi á næstu 2-3 dögum. Björn hefur séð lítilsháttar af flækingsfuglum í dag s.s. barrfinkur, landsvölur og gransöngvara. |nl|Ein bleshæna er lengi búin að halda sig hér innst í höfninni og lætur sér fátt um finnast þó fólk veiti henni talsverða athygli og mikið sé tekið af myndum af henni. Lesa meira
 
Framkvæmdir Jökulsá  á Breiðamerkursandi

Viðvörunarljós við brúna á Jökulsá á Breiðamerkursandi - 21.04.2005 Apríl

Vegagerðin hefur sett viðvörunarljós við brúna á Jökulsá á Breiðamerkursandi. |nl|Ljósin virka þannig að þegar bíll nálgast brúna fer hann yfir skynjara sem kveikir á gulu blikkandi aðvörunarljósi sem gefur til kynna að bíll sé að koma að brúnni á leið yfir. |nl|Aðstæður eru þannig beggja megin brúarinnar að ekki sést til bíls sem væri að koma á móti inn á brúna nema þá allra stærstu og vonandi kemur þessi aðvörunarbúnaður í veg fyrir árekstra á brúnni í framtíðinni. Lögreglan segir að venjulega hafi orðið 3-4 árekstrar á brúnni á hverju ári,margir stórir árekstrar og oft mikið eignatjón en ekki alvarleg slys á fólki og oft hafi legið við alvarlegum slysum þar. Lesa meira
 
Karlakórinn Jökull

Vortónleikar Karlakórsins Jökuls - 20.04.2005 Apríl

Á hverju vori fagnar Karlakórinn Jökull vorinu með tónleikum á sumardaginn fyrsta. Tónleikarnir að þessu sinni verða í Hafnarkirkju kl.20.00 á sumardaginn fyrsta og verða svo endurteknir á föstudagskvöldið 22.apríl kl.20.00. Undirleikari er Guðlaug Hestnes, stjórnandi Jóhann Morávek og einsöngvari er Ólafur Kjartan Sigurðarson. Aðgangseyrir er 1500 kr og frítt fyrir börn yngri en 14 ára. Lesa meira
 
bjorgunarskip_3

Vígsla björgunarskipsins og kaffisala í Slysavarnahúsinu - 20.04.2005 Apríl

Hin árlega Kaffisala Slysavarnadeildarinnar Framtíðarinnar verðu í húsi Slysavarnafélagsins við Álaugareyjarveg KL: 15.00. á morgun, sumardaginn fyrsta. Þetta er ein stærsta fjáröflun slysavarnakvenna á ári hverju. Konur í Slysavarnadeildinni taka sig saman og baka myndarlegar og gómsætar hnallþórur fyrir þenna dag eins og þeim einum er lagið og þegar til þeirra er leitað. Í deildinni eru tæplega 90 konur, áhugasamar konur á öllum aldri. Ný stjór var kosin á aðalfundi deildarinnar 3.aprí sl. og þær sem nú stija við stjórn eru; Þorbjörg Helgadóttir formaður, Guðrún Ósk Óskarsdóttir varaformaður, Ragna Einarsdóttir ritari, Anna María Ríkharðsdóttir gjaldkeri, meðstjórnendur eru Ásta Halldóra Guðmundsdóttir og Eva Eiríksdóttir. |nl|Félagskonum er skipt í nefndir sem hver hefur sitt verkefni og sjá um s.s. viðburði sem upp koma þannig að t.d. eru það kaffinefndarkonur sem sjá um sumardaginn fyrsta. Lesa meira
 
Björn Arnarsson

Fuglaathugunarstöðin og FAS í samstarf - 20.04.2005 Apríl

Um síðustu helgi var skrifað undir samstarfssamning milli Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) um fuglaathuganir. Markmið samningsins er að efla náttúruskoðun við FAS, auka rannsóknir á fuglum og efla áhugann á þeim. Miðað er við að nemendur FAS vinni fuglaverkefni í öllum áföngum sem tengjast líffræði. Fuglaathugunarstöðin sér um skipulagningu og framkvæmd verkefnanna í samvinnu við líffræðikennara FAS. FAS greiðir samkvæmt reikningi Fuglaathugunarstöðinni fyrir vinnuframlag og annan kostnað sem hlýst af verkefnunum samkvæmt fyrirfram samþykktri verk- og kostnaðaráætlun. Líffræðikennari FAS og fulltrúi Fuglaathugunarstöðvarinnar skulu í apríl og nóvember ár hvert hittast og skipuleggja verkefnavinnu næstu annar. Hægt er að koma á öðrum samstarfsverkefnum sem aðilar eru sammála um og samræmast markmiðum samningsins. Lesa meira
 
Nátthegri

Búið að merkja 511 fugla í Einarslundi - 19.04.2005 Apríl

Í dag var búið að merkja fimmhundruð og ellefu fugla í Einarslundi frá því merkingar hófust þar 24. mars á vegum Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands sem opnuð var á Höfn 14. mars sl. Þar voru merktir 502 skógarþrestir, hrossagaukar, músarindill, svartþröstur og hettusöngvari. Fuglarnir eru merktir með númeruðum fóthring úr áli. Fyrsta maríuerlan sást á Höfn í morgun og litlu seinna birtist steindepill. Margir bíða spenntir eftir að sjá fyrstu kríuna, sem væntanleg er á hverri stundu, og eru vissir um að með komu kríunnar sé vorið endanlega komið. Björn Arnarson segir að utan kríunnar séu einungis spóinn og þórshaninn ókomnir en þeir eru alltaf síðastir farfuglanna og koma venjulega einhvern tíma í maí. Lesa meira
 
Fimleikaflokkurinn sem fór á Islandsmótið.

Mjög góð frammistaða Sindrastúlkna í fimleikum - 19.04.2005 Apríl

Laugardaginn 16.apríl var haldið Austurlandsmót í fimleikum í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum. Frá Fimleikadeild Sindra fóru 29 keppendur sem stóðu sig allir með stakri prýði. Í þessa ferð notuðum við nýja Sindrabílinn, en með tilkomu hans mun ferðakostnaður hjá deildinni lækka. Heim komum við svo á laugardagskvöldið með slatta af verðlaunapeningum í farteskinu, ásamt Austurlandsmeistaratign í ýmsum flokkum. Eins og áður hefur verið greint frá í fréttum frá Fimleikadeildinni er keppt í ýmsum þrepum og aldurshópum. |nl| Lesa meira
 
Lúpína

Ný aðferð við útrýmingu á lúpínu í Skaftafelli - 19.04.2005 Apríl

Upplýsingamiðstöðin í Skaftafelli verður opnuð 2. maí og verslunin í byrjun júní. Fyrirkomulag á þjónustu verður svipað og sl. sumar. Núna er verið að lagfæra og endurbæta skrifstofuaðstöðuna í þjónustumiðstöðinni og starfsemi í þjóðgarðinum að komast á stað. Sjálfboðaliðar eru farnir að mæta til vinnu og er mikil ásókn í sjálfboðavinnuna og segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður að sl. sumar hafi meira en 50% af allri sjálfboðavinnu sem unnin var hér á landi verið unnið í Skaftafelli. Helstu verkefni eru gerð göngustíga og útrýming á lúpínunni sem gert hefur sig heimakomna í þjóðgarðinum. Hvað lúpínuna varðar þá ætlar Ragnar að reyna nýja aðferð við útrýmingu hennar sem er einfaldlega þannig, að fá kindur á svæðið og beita þeim á lúpínuna. Ragnar hefur samið við bónda í Öræfum um að fá nokkrar kindur sem verða hafðar á lokuðu svæði þar sem lúpínan hefur breitt úr sér. Þessi aðferð hefur borið góðan árangur í Svínafelli og er hún notuð á norðurlöndum þar sem bæði kindur og íslenskir hestar er beitt bæði í lúpínu og einnig sinu. Lesa meira
 
Jesus Christ Superstar leikhópurinn

Leikendum Súperstar fagnað mikið og lengi - 18.04.2005 Apríl

Rokksöngleikurinn Súperstar var frumsýndur í Mánagarði sl. laugardagskvöld fyrir troðfullu húsi. Sýningin tókst í alla staði frábærlega vel og var leikendum fagnað mikið og lengi einnig leikstjóranum Gunnari Sigurðssyni og öðrum sem að sýningunni stóðu. Uppsetning á Súperstar er á vegum Leikfélags Hornafjarðar í samvinnu við FAS og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Leikendur eru nemendur FAS og með hlutverk Súperstar fer Ingi Steinn Þorsteinsson, Maríu leikur Sara Eik Sigurgeirsdóttir, Nanna Halldóra Imsland leikur Júdas, systkinin Þórður Ingvarsson og Ingibjörg eru Pílatus og Heródes. Ágúst Elvarsson er Símon lærisveinn og með hlutverk prestanna fara Elvar Bragi Kristjónsson, Emil Örn Morávek og Sigfinnur Mar Þrúðmarsson. Með hlutverk lærisveinanna fara Aino Raiskila, Alexandra Ingvarsdóttir, Chiharu Kawai og Goran Basrak. Þessir ungu leikarar eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína á sýningu Superstar og vonandi fá Hornfirðingar að njóta þess að sjá þau sem oftast á sviðinu í Mánagarði í framtíðinni. Lesa meira
 
Malbikunarframkvæmdir

Mikilvægt að sýna framkvæmdaraðilum tillitsemi - 15.04.2005 Apríl

Nú standa yfir malbikunarframkvæmdir á Höfn og munu þær standa yfir næstu daga. Þessar framkvæmdir hafa óumflýjanlega í för með sér óþægindi fyrir íbúana og geta valdið töfum á umferð og því er nauðsynlegt að sýna framkvæmdaraðilum tillitsemi og fara eftir fyrirmælum og merkingum. Í gær og dag er verið að malbika við Hafnarbrautina (við Kaffihornið). Næstu daga verður unnið við framkvæmdir í Hlíðartúni, Vesturbraut, Kirkjubraut, Norðurbraut, Vogabraut, Smárabraut og í Svalbarði. Einnig stendur til að malbika einn vinsælasta rúntstað innan Hafnar, það er út í Óslandi við minnismerkið þar sem vegfaraendur hafa útsýni yfir innsiglinguna um Hornafjarðarós. Lesa meira
 
Son of the Mask

Bíósýningar hefjast að nýju - 14.04.2005 Apríl

Kvikmyndasýningar eru nú að hefjast að nýju í Sindrabæ eftir 5 mánaða hlé. Búið er að gera gagngerar endurbætur á kvikmyndasalnum. Nýir stólar er komnir í salinn en þeir voru innfluttir sérstaklega fyrir sal sem einnig á að nýtast sem kennslustofa með möguleika á smærri fyrirlestrum og tónleikum. Félagsmiðstöðin Þrykkjan mun hafa þar aðstöðu fyrir kvikmyndaklúbbinn sinn. Sýningar hefjast n.k. sunnudag á myndinni Son of the Mask sem er barnamynd með íslensku tali. Á sunnudagskvöldið verður gamanmyndin Meet the fockers sýnd. Stefnt er að því að hafa kvikmyndasýningar aðra hverja viku um helgar.< Lesa meira
 
Úr myndasafni

FAS og Heppuskóli í úrslit - 14.04.2005 Apríl

Það var mikil spenna í Þrykkjunni í gær er fyrri umferð Þrykkjuþrauta fór fram. Þar keppti Framhaldsskólinn við Þrykkjuna og Hafnarskóli við Heppuskóla. Keppnin fór þannig að Framhaldsskólinn sigraði Þrykkjuna og Heppuskóli lagði Hafnarskóla. Til úrslita keppa því Framhaldsskólinn og Heppuskóli og fer keppnin fram á mánudagskvöldið kemur í Þrykkjunni. Spyrill í keppninni er Gunnlaugur Bragi Björnsson og háyfirdómari er Sindri Ragnarsson. Þrykkjuþrautir byggjast upp á hraða-vísbendinga -, og almennum spurningum. Þá er einnig keppt í tækjum s.s. billjard og körfu, líka er framkvæmdur látbragðsleikur. Þetta er góð æfing fyrir Spurningakeppni framhaldsskólanna. Núverandi handhafi farandverðlauna Þrykkjuþrauta er lið FAS. Lesa meira
 
Nemendu FAS leita að olíu

Vorhátíð FAS og Súperstar - 14.04.2005 Apríl

Laugardaginn 16. apríl næstkomandi verður blásið til Vorhátíðar FAS á Hornafirði. Þar verður starfsemi Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) kynnt með pompi og prakt. Átak hefur verið gert í kynningarmálum FAS undanfarið, nýju kynningarriti um skólann verður dreift á Vorhátíðinni og opnaður verður nýr vefur FAS á slóðinni www.fas.is. Vorhátíð FAS hefst kl. 15:00 og þangað er öllum nemendum tíunda bekkjar á Hornafirði, Djúpavogi og Kirkjubæjarklaustri, sérstaklega boðið í heimsókn ásamt foreldrum þeirra. Allir íbúar á Hornafirði og nágrenni eru auk þess boðnir velkomnir á hátíðina. Þar kynna skólameistari FAS og kennarar, fjölbreytta starfsemi skólans, bæði hvað varðar kennslu og félagslíf. Auk þess verða flutt atriði úr söngleiknum Jesus Christ Superstar og boðið upp á léttar veitingar. Lesa meira
 
Björgunarskip

Björgunarskipið komið til Hafnar - 14.04.2005 Apríl

Björgunarskipið kom til Hafnar um kvöldmatarleitið í gær. Skipið er af gerðinni Arun 1108 frá Bretlandi. Það er 42 brúttólestir og búið tveim caterpillar 485 hestafla aðalvélum. Björn lóðs tók á móti skipinu rétt fyrir utan Ósinn og fylgdi því síðasta spölinn. Ferðin frá Hafnarfirði gekk mjög vel enda góður sjór og ganghraði skipsins um 15 sjómílur. Björgunarskipið verður staðsett á Hornafirði og er það liður í verkefni Landsbjargar og björgunarsveitanna að kaupa og staðsetja björgunarskip sem víðast á landinu til þess að stytta sem mest þann tíma sem fer í siglingar að hugsanlegum stað þar sem aðgerða björgunarskips er þörf. Lesa meira
 
Superstar

Frumsýning á Súperstar - 13.04.2005 Menning

Laugardaginn 16. apríl nk. frumsýnir Leikfélag Hornafjarðar í samvinnu við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu og Tónskóla Austur Skaftafellssýslu söngleikinn “Súperstar” Eins og allir vita er söngleikurinn byggður á söngleik Webbers og Rise “Jesus Christ Superstar” 21 leikari og söngvari taka þátt í sýningunni og er sá hópur blanda af ungum nýliðum og eldri reynsluboltum. Allir leikarar sýningarinnar eru nemendur í FAS. Þess má til gamans geta að í kórnum eru foreldrar leikara, kennarar leikaranna og aðrir. Æfingar hófust um miðjan febrúar og hefur verið æft af fullum krafti síðan. Sýnt er í Mánagarði, en nokkuð miklar breytingar hafa verið gerðar þar svo að hann henti betur undir sviðslistir. Lesa meira
 
Vestragil, Gamla rafstöðin í Skaftafelli

Tveir ráðnir í stöðu sérfræðinga í þjóðgarðinn í Skaftafelli - 13.04.2005 Apríl

Umhverfisstofnun hefur valið tvo úr hópi umsækjenda um stöður sérfræðinga í þjóðgarðinn í Skaftafelli. Ráðin voru Helga Davids á Stafafelli sem verður á starfsstöðinni á Höfn og Kári Kristjánsson á starfstöðina á Kirkjubæjarklaustri. |nl|Helga er með meistarapróf í ísaldarjarðfræði og fornleifafræði einnig í B.Ph.Ísl.-námi í íslensku fyrir erlenda nemendur. Helga hefur unnið ýmis störf tengd þjóðgarðinum í Skaftafelli og starfað þar sem landvörður í 3 sumur. Helga byrjar í nýja starfinu 2. maí og verður með starfsaðstöðu i Nýheimun og einnig verður hún mikið inni á Lónsöræfum í sumar þar sem hún mun sjá um landvörslu þar sem ekki verður neinn auka starfsmaður ráðinn þar. Lesa meira
 
Hljómsveitin Skítamórall

Skítamórall á Humarhátíð - 13.04.2005 Humarhátíð Fréttir

Humarhátíðarnefnd hefur komið saman um nokkurn tíma og er allt komið á fullan skrið enda styttist í hátíðina sem verður haldin helgina 1. til 3. júlí n.k. Búið er að gera samning við eina af vinsælustu hljómsveitum landsins og er það Skítamórall sem mun sjá til þess að allir skemmti sér sem allra best. Aðrir skemmtikraftar eru að stimpla sig inn hver af öðrum því margir vilja koma á hátíðina. Áhersla er lögð á að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi þessa helgi og margir nýir dagskrárliðir ásamt þeim föstu verða til skemmtunar. Fjölskyldan verður höfð í fyrirrúmi, leikir, söngur, gleði og gaman alla hátíðina. Lesa meira
 
Höfn

Auglýst eftir fólki í sumarstörf - 12.04.2005 Fréttir

Sveitarfélagið auglýsir nú eftir fólki í sumarstörf eins og undanfarin ár, um er að ræða starf verkstjóra vinnuskólans en það starf felst í stjórnun hans, skipulagningu og umsjón verkefna í samráði við deildarstjóra tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar. Æskilegt er að umsækjendur í starfið séu 20 ára eða eldri, hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga. Einnig er reynsla af stjórnun verkefna og almennum garðyrkjustörfum æskileg. Auglýst eftir starfsmanni sem sér um flokksstjórn í vinnuskólans á Höfn og í Nesjum, það starf felst í að vinna með unglingum í umhirðu grænna svæða sveitarfélagsins. Umsækjendur þurfa helst að vera 20 ára eða eldri, æskilegt er að þeir hafi uppeldismenntun og/eða reynslu af umgengni við unglinga og er reynsla af almennum garðyrkjustörfum æskileg. |nl| Lesa meira
 
Dansað í Nesjaskóla á Öskudaginn

Dansnámskeið - 11.04.2005 Apríl

Í dag hefst danskennsla í Sindrabæ fyrir krakka í 5.-10. bekk. Kennarar verða frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru en dansnámskeiðið er á vegum Dansklúbbsins Takts. Dansnámskeiðið í fyrra var mjög vel sótt og voru um 30 krakkar sem tóku þátt í námskeiðinu þá. Þeir sem ekki hafa skráð sig er bent á að hafa samband við Birnu í 8494578 eða Öllu í 895 1654. Námskeiðið er niðurgreitt með styrk sem Dansklúbburinn Taktur fékk frá Æskulýðs- og tómstundarráði Sveitarfélagsins og kostar kr.2500.- Stefnt er að halda námskeið fyrir fullorðna ef næg þáttaka fæst. Lesa meira
 
Árdís Ilmur Jóhannsdóttir og Dóra Björg Björnsdóttir

Færðu Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands ágóða af tombólu - 10.04.2005 Apríl

Tvær ungar stúlkur Árdís Ilmur Jóhannsdóttir og Dóra Björg Björnsdóttir færðu Hornafjarðardeild Rauða kross Íslands 800 krónur en það er ágóði af tombólu sem þær héldu í dag. Það er ánægjulegt að vita til þess hve margir Hornfirðingar eru reiðubúnir að leggja sitt af mörkum og styrkja bágstadda. Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem félaginu berst gjöf frá krökkum sem halda tombólu. Lesa meira
 
Malarvinnslan

Malbiksframkvæmdir í Almannaskarði og á Höfn - 08.04.2005 Apríl

Fyrirhugað er að hefja malbiksframkvæmdir í Almannaskarðsgöngum í næstu viku ef veður leyfir. Malarvinnslan hf sem er undirverktaki hjá Héraðsverki ehf hefur nú sett upp malbiksstöð við syðri enda gangna og nú mun allt vera klárt til framleiðslu. Steinefni eru tekin í Fjarðará í Lóni. Í verkið fara um 2500 tonn af malbiki og verður það lagt út í tveimur 5 cm. lögum. Breidd malbiks er 6,3 m auk útskota. Ráðgert er að taka í einni færu alla breidd vegarins. Í tengslum við malbiksframkvæmdirnar í göngunum hefur Sveitarfélagið Hornafjörður ákveðið að gera átak í gatnakerfi bæjarins. Að sögn Helga Más Pálssonar er fyrirhugað að leggja alls um 15 þúsund fermetrar af malbiki á Höfn. Lesa meira
 
Jesus Christ Superstar leikhópurinn

Kynningarefni um söngleikurinn Jesus Christ Superstar á SkjáVarpi í kvöld - 07.04.2005 Apríl

Í kvöld kl.20 á undan sýningu Bæjarstjórnarfundar á SkjáVarpi verða sýnd tvö kynningarmyndbönd frá leikhópnum sem stendur að söngleiknum Jesus Christ Superstar. Söngleikurinn er í leikstjórn Gunnars Sigurðssonar og samvinnuverkefni FAS (Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu), Leikfélags Hornafjarðar og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Lesa meira
 
Efst á hryggnum frá Vestur-Hnútu að Þumli. Morsárdalur og Skaftafell í baksýn. (mynd: Einar Sig)

Launin eru stórbrotið útsýni af hæsta tind Íslands - 07.04.2005 Apríl

Ferðafélagið stefnir að göngu á Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands á næstu vikum. Þetta er erfið ganga en launin eru stórbrotið útsýni af hnúknum, auk stoltsins yfir að hafa staðið á hæsta tindi landsins eins og þeir Hofsnesmenn orða það. Leiðsögumaður í ferðinni er Einar Rúnar Sigurðsson hjá Öræfaferðum, en hann er einn reyndasti leiðsögumaður á þessum slóðum. Einar hefur farið um 190 ferðir upp á Hvannadalshnjúk og er því hópurinn í góðum höndum. Reiknað er með að ferðin taki um 12-15 tíma og því er nauðsynlegt að þátttakendur séu í góðu formi. Um 10 félagar í ferðafélaginu héldu á hnjúkinn fyrir þremur árum og síðan átti að fara aftur ári síðar en því miður þurfti að hætta við þá ferð. Lesa meira
 
Gísli Sverrir Árnason

Valinn úr hópi rúmlega fjörutíu umsækjenda - 06.04.2005 Apríl

Gísli Sverrir Árnason fyrrverandi forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar tók nýlega við starfi kynningarfulltrúa hjá Þjóðminjasafni Íslands og var hann valinn úr hópi rúmlega fjörutíu umsækjenda um starfið. Að sögn Gísla er starfið fjölbreytt og spennandi og felst meðal annars í umsjón með öllu kynningarefni sem gefið er út á vegum safnsins, samskiptum við fjölmiðla og ferðaþjónustu, umsjón með heimasíðu o.fl. "Starfið leggst mjög vel í mig" sagði Gísli Sverrir "og ég vænti þess að reynsla mín af starfi að menningarmálum á Hornafirði nýtist mér afar vel í nýja starfinum. Lesa meira
 
Febrúar blíða á Hornafirði

Fiskistofa með 5 ný störf á Hornafirði - 05.04.2005 Apríl

Sjávarútvegsráðherra kynni í Vestmannaeyjum í dag breytingar sem verða gerðar á Veiðieftirliti Fiskistofu. Þær felast í að stofnuð verða fjögur ný útibú Fiskistofu, á Höfn, í Vestmannaeyjum, í Stykkishólmi og Grindavík. Bætt verður við 4 nýjum stöðugildum í veiðieftirliti. Þeir sem við það starfa eru nú 35 og búa á höfuðborgarsvæðinu. Á næsta ári verður opnað nýtt útibú hér á Höfn sem myndi þjónusta landssvæðinu frá Höfn að Vopnafirði. Í fyrstu yrðu ráðnir tveir eftirlitsmenn og yfirmaður útibús. Á árinu 2007 yrðu svo ráðnir tveir eftirlitsmenn til viðbótar hér á Höfn og því yrði heildarstarfsmannafjöldi fimm manns. Lesa meira
 
Odinn og Gisli

Hótelið fer í nýjan búning - 04.04.2005 Apríl

Á næstu dögum verður boðin út klæðning utan á Hótel Höfn, en það mun verða klætt með steinflísum og sérstakri stálklæðningu. Ljóst er að 3-4 aðilar munu bjóða í verkið sem hefst í sumar og á að ljúka fyrir sumarið 2006. Einnig verður skipt út öllum gluggum, þakið endurnýjað og ýmsar aðrar lagfæringar innandyra. Þess má geta að skóflustunga að hótelinu var tekið fyrir 40 árum síðan og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan. Lesa meira
 
Hótel Skaftafell (úr myndasafni)

Útivist og heilbrigt líferni, ráðstefna í Freysnesi - 01.04.2005 Apríl

Ráðstefna sem ber heitið Útivist og heilbrigt líferni, verður haldin í Freysnesi í Öræfum dagana 5.-7. maí nk. Ráðstefnan er á vegum Umhverfisráðuneytisins og Norðurlandaráðs en Landvernd sér um undirbúning hennar. Þar verður margt góðra gesta sem mikið láta sig varða þjóðgarða, útivistarsvæði og hvernig fólk getur hlúð að og notið þessara staða og um leið byggt upp eigið heilbrigði með umgengni við náttúruna. Meðal þeirra sem verða með fyrirlestra á ráðstefnunni eru; Anna Sigríður Þórðardóttir umhverfisráðherra, Vigdís Finnbogadóttir fyrrv.forseti, Jack D. Ives og Roger Croft frá Scotlandi báðir miklir Skaftafellsunnendur. Um eitt hundrað manns munu sitja ráðstefnuna og þar af eru 70-80 erlendir gestir víða að. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður mun fara með ráðstefnugesti í stutta kynningarferð um Skaftafell og nágrenni. Lesa meira
 
Árni Rúnar Þorvaldsson kennari

Fréttatilkynning frá Samfylkingarfélagi Hornafjarðar - 01.04.2005 Apríl

Stjórn Samfylkingarfélags Hornafjarðar hefur fundið fyrir miklum áhuga meðal fólks á formannskosningu Samfylkingarinnar. Af þeim sökum vill stjórnin koma því á framfæri að hægt er að ganga í flokkinn í gegnum Samfylkingarfélag Hornafjarðar. Til þess að geta tekið þátt í kosningunni þarf að gangar frá skráningu fyrir 15. apríl. Lesa meira
 
Strákarnir á Stöð 2

Hver treystir sér í ógeðsdrykkinn? - 01.04.2005 Apríl

Sveppi, Auddi og Pétur, strákarnir á Stöð 2 eru á Höfn ásamt tökuliði vegna upptöku á þætti sem sýndur verður miðvikudaginn 20. apríl n.k. Þeir vilja fá sjálfboðaliða í upptökuna og sem fram fer í Sindrabæ kl.15:00 í húsnæði Þrykkjunnar. Sveppi sem hefur verið í frí síðustu þætti vildi að sjálfsögðu ekki missa af þessu tækifæri og er hingað kominn með félögunum. Að sögn Guðmundar Péturssonar upptökustjóra Stöðvar 2 þá er verið að leita að hressu fólki sem er ófeimið við að koma fram í sjónvarpi og er til í að drekka ógeðsdrykkinn. Þeir sem eru nógu hugaðir fá gefins Erikson Sony K500 GSM síma fyrir þátttökuna. Strákarnir skemmta áhorfendum Stöðvar 2 fjögur kvöld vikunnar með ýmsum uppátækjum og að þessu sinni leita þeir út fyrir höfuðborgarsvæðið eftir efni og nýjum andlitum. Lesa meira
 
Bátarnir sem koma á Höfn og Skógarströnd

Björgunarskipið komið til landsins - 01.04.2005 Björgunarfélag : Fréttir

Björgunarskip Hornfirðinga og Skagfirðinga komu til Reykjavíkur s.l. þriðjudag eftir að hafa beðið flutnings frá Bretlandi í nokkrar vikur, en vegna mikilla flutninga hjá Samskip hefur ekki verið laust pláss fyrir skipin tvö fyrr en nú. Björgunarskipin standa nú á bryggjukanti hjá Samskip í Reykjavík þar sem Siglingastofnun skoðar skipin. Stefnt er á að sjósetja okkar skip á mánudaginn og sigla því til Hafnarfjarðar segir Friðþór Harðarson. Þar verður unnið lítilsháttar um borð og áhöfn fær kennslu á skipið og að því búnu siglum við heim einhvern næsta blíðviðrisdag. Söfnun handa Björgunarsjóði Hornafjarðar hefur gengið mjög vel, stjórn (félagar) björgunarsjóðsins hafa leitað til fyrirtækja og einstaklinga um framlög (styrk) til Björgunarbátasjóðs og hafa honum borist höfðinglegar gjafir og verður nánar sagt frá þeim hér á vefnum þegar skipið kemur heim. Lesa meira
 
Strákarnir á Stöð 2

Hver treystir sér í ógeðsdrykkinn? - 01.04.2005 Apríl

Sveppi, Auddi og Pétur, strákarnir á Stöð 2 eru á Höfn ásamt tökuliði vegna upptöku á þætti sem sýndur verður miðvikudaginn 20. apríl n.k. Þeir vilja fá sjálfboðaliða í upptökuna og sem fram fer í Sindrabæ kl.15:00 í húsnæði Þrykkjunnar. Sveppi sem hefur verið í frí síðustu þætti vildi að sjálfsögðu ekki missa af þessu tækifæri og er hingað kominn með félögunum. Að sögn Guðmundar Péturssonar upptökustjóra Stöðvar 2 þá er verið að leita að hressu fólki sem er ófeimið við að koma fram í sjónvarpi og er til í að drekka ógeðsdrykkinn. Þeir sem eru nógu hugaðir fá gefins Erikson Sony K500 GSM síma fyrir þátttökuna. Strákarnir skemmta áhorfendum Stöðvar 2 fjögur kvöld vikunnar með ýmsum uppátækjum og að þessu sinni leita þeir út fyrir höfuðborgarsvæðið eftir efni og nýjum andlitum. Lesa meira
 
Batman begins

Sagafilm gefur 25 miða á frumsýningu Batman begins á Hótel Höfn - 01.04.2005 Létt grín

Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær þá stendur til að heims-frumsýna kvikmyndina Batman begins í Háskólabíó á næstunni og af því tilefni munu helstu leikarar myndarinnar mæta til landsins og verða viðstaddir frumsýninguna. Meðal þeirra verða Michael Caine, Liam Neeson, Morgan Freeman, Gary Oldman, Ken Watanabe, Katie Holmes og Rutger Hauer. Sem sagt, magnað leikaralið. Eins og alþjóð veit þá fóru tökur á kvikmyndinni fram í Öræfum og af því tilefni hefur Sagafilm sem sá um framkvæmd upptökunnar fyrir Warner Bros hér á landi ákveðið af því tilefni að gefa Hornfirðingum 25 miða á frumsýningu myndarinnar í Háskólabíó og fylgir flugfar til Reykjavíkur með. Þeir heppnu fá einnig að mæta í frumsýningarpartí sem fer fram eftir frumsýninguna. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica